Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 24. maí 2017 – 8. maí 2021 Sjá núgildandi

432/2017

Reglugerð um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur til íslenskra skipa sem stunda veiðar á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), utan lögsögu ríkja. Þá tekur reglugerðin til veiða innan lögsögu ríkja, lúti veiðar á viðkomandi tegundum stjórn NEAFC um leyfilegan hámarksafla. Loks gildir reglugerðin um tilkynningarskyldu íslenskra skipa til hafnarríkja, hafi þau stundað veiðar innan eða utan lögsögu eða tekið við afla sem veiddur er á samningssvæði NEAFC og landað aflanum í erlendri höfn.

2. gr. Leyfi til veiða.

Fiskiskipum er óheimilt að stunda veiðar á samningssvæði NEAFC, sbr. 1. gr., án sérstaks leyfis Fiskistofu.

Leyfi Fiskistofu gilda fyrir einstaka stofna og eru til eins árs í senn. Um aflamark við veiðar fer samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða, eftir því sem við á. Leyfin skulu bundin þeim skilyrðum sem nauðsynleg eru til að fullnægja skuldbindingum Íslands um veiðimagn, veiðisvæði, gerð og búnað veiðarfæra, veiðitíma, eftirlit, sýnatöku, tilkynningar o.fl. Þá skal áskilið að fylgt sé ákvæðum þessarar reglugerðar.

3. gr. Fjarskiptabúnaður.

Fiskiskip sem stunda veiðar á samningssvæðinu skulu búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða viðkomandi skips á klukkustundar fresti, með sjálfvirkum hætti, til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslunnar og Fiskistofu, hér eftir nefnd eftirlitsstöðin, sem miðlar gögnum til hlutaðeigandi stofnana.

Óheimilt er að halda til veiða fyrr en starfsmenn eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest að fjarskiptabúnaður starfi eðlilega. Skulu sendingar samkvæmt framangreindu hefjast þegar viðkomandi skip lætur úr höfn og skal þeim ekki ljúka fyrr en skipið kemur til hafnar að nýju til löndunar afla.

Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga bilar skal gert við hann svo fljótt sem mögulegt er, þó eigi síðar en að 30 dögum liðnum. Þar til búnaðurinn verður kominn í lag skal senda á annan hátt upplýsingar um staðsetningu skipsins á a.m.k. 4 klukkustunda fresti til eftirlitsstöðvarinnar.

Eftirlitsstöðin skal með sjálfvirkum hætti fylgjast með því hvort skip stundi veiðar innan lokaðra svæða. Jafnframt skal eftirlitsstöðin með sama hætti fylgjast með hvort skip stundi botnvörpuveiðar utan svæða þar sem botnvörpuveiðar hafa ekki verið stundaðar áður.

4. gr. Afladagbók o.fl.

Halda skal rafræna afladagbók vegna veiða á NEAFC-samningssvæðinu, sem uppfyllir skilyrði sem greinir í reglum NEAFC um stjórn og eftirlit (e. Scheme of Control and Enforcement). Að auki skulu skip sem vinna afla um borð, halda sérstaka vinnslu- og lestarskrá eftir því sem nánar greinir í reglum NEAFC.

Allar tilkynningar sem skylt er að senda samkvæmt reglugerð þessari skal senda á tölvutæku formi úr rafrænni afladagbók skipsins til eftirlitsstöðvarinnar. Tilkynningar skulu sendar með þeim hætti sem lýst er í reglum NEAFC um stjórn og eftirlit.

5. gr. Tilkynningar.

Öll skip sem stunda veiðar á samningssvæðinu skulu senda eftirgreindar tilkynningar til eftirlitsstöðvarinnar:

  1. Komutilkynning - COE: Tilkynna skal með ekki meira en 12 klukkustunda fyrirvara og að lágmarki 2 klukkustunda fyrirvara, að skip fari inn á samningssvæðið til veiða og skal tilkynning vera í samræmi við reglur NEAFC um stjórn og eftirlit.
  2. Aflatilkynning - CAT: Tilkynna skal daglega um m.a. heildarafla síðasta sólarhrings miðað við afla upp úr sjó, sundurgreindan eftir tegundum. Tilkynning skal berast í síðasta lagi klukkan 12 UTC næsta dag eftir að veiðar hófust og vera í samræmi við reglur NEAFC um stjórn og eftirlit.
  3. Lokatilkynning - COX: Tilkynna skal með ekki meira en 8 klukkustunda fyrirvara og að minnsta kosti 2 klukkustunda fyrirvara, að skip yfirgefi samningssvæðið. Tilkynning skal vera í samræmi við reglur NEAFC um stjórn og eftirlit.

Um afturköllun tilkynninga fer eftir því sem mælt er fyrir um reglum NEAFC um stjórn og eftirlit.

Þá skal tilkynna til Fiskistofu, á tölvupóstfangið uthafsv@fiskistofa.is, þegar fiskiskip hefur veiðar á samningssvæðinu og þegar þeim lýkur.

6. gr. Eftirlit um borð í skipi.

Fiskiskipum sem veiða á samningssvæðinu eða hafa stundað veiðar á því, er skylt að veita aðstoð sína til þess að eftirlitsmenn samningsríkja NEAFC, sem sýnt geta fram á með skilríkjum að þeir séu til þess bærir, geti komist um borð eftir að skip eða þyrla sem þeir eru um borð í hefur gefið viðeigandi merki á alþjóðlegu merkjamáli um að þeir æski þess að koma um borð.

Um borð í hverju skipi skal vera stigi og önnur áhöld sem gera eftirlitsmönnum kleift að komast um borð með skjótum og öruggum hætti. Um búnað og notkun stiga og annarra áhalda fer samkvæmt reglum NEAFC um stjórn og eftirlit.

Skipstjórum er skylt að veita eftirlitsmönnum endurgjaldslaust aðbúnað, starfsaðstöðu og aðstoð sem þeim er nauðsynleg í starfi sínu, m.a. greiðan aðgang að fjarskiptatækjum, staðsetningartækjum og kortum.

Eftirlitsmönnum skal leyft að skoða og mæla veiðarfæri skipsins, afla þess o.fl. til að ganga úr skugga um að farið sé eftir reglum NEAFC. Þá skal eftirlitsmönnum gert kleift að skoða skjöl skipsins, skrifa í þau athugasemdir sínar, m.a. um meint brot og gera skýrslu um skoðunina eftir því sem nánar er mælt fyrir um í reglum NEAFC um stjórn og eftirlit.

7. gr. Eftirlitskostnaður.

Kostnaður af veru eftirlitsmanns er samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu. Útgerð skips með eftirlitsmann á vegum Fiskistofu um borð skal sjá honum fyrir fæði og aðstöðu án endurgjalds.

8. gr. Ráðstafanir til verndar viðkvæmum vistkerfum.

Skipstjóri sem stundar veiðar með botnlægum veiðarfærum skal, til verndunar viðkvæmra vistkerfa, meta magn tegunda sem falla undir viðkvæm vistkerfi (kóralar, sæfjaðrir, svampar o.fl.) í togi, neta- eða línulögn og færa í afladagbók til samræmis við reglur NEAFC (og senda einnig upplýsingar á netfangið uthafsv@fiskistofa.is). Ef magn þessara tegunda yfirstígur viðmiðanir í reglum NEAFC um stjórn og eftirlit, á svæði þar sem veiðar hafa áður verið stundaðar með botnlægum veiðarfærum, gilda reglur NEAFC um tilkynningar, sýnatöku, takmarkanir við frekari veiði og breytta veiðitilhögun.

Um veiðar með botnveiðarfærum á svæðum þar sem slíkar veiðar hafa ekki verið stundaðar og lokuð svæði til verndar viðkvæmum vistkerfum, fer samkvæmt reglum NEAFC um stjórn og eftirlit.

9. gr. Vigtun og aflaskráning.

Um vigtun afla gilda ákvæði reglugerðar um vigtun og skráningu sjávarafla. Óheimilt er að flytja óvigtaðan afla um borð í flutningaskip eða önnur veiðiskip, en Fiskistofa getur gefið undanþágu frá þessu við kolmunnaveiðar, ef ástæða er til. Skipum sem stunda veiðar á uppsjávartegundum, er þó heimilt að miðla afla úr veiðarfærum milli veiðiskipa í því skyni að koma í veg fyrir að fiski sé sleppt dauðum úr veiðarfærum. Í þeim tilvikum skulu báðir aðilar (gefandi og þiggjandi) skrá slíkt í rafræna afladagbók skipsins, samanber reglur NEAFC um stjórn og eftirlit.

Við vinnslu skal allur afli auðkenndur samkvæmt reglum NEAFC um stjórn og eftirlit.

10. gr. Löndun erlendis.

Afla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Heimilt er þó með leyfi Fiskistofu að landa afla í höfnum samningsaðila Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) enda sé tryggt að eftirlit með vigtun og skráning aflans sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Sækja skal um leyfi til löndunar afla í höfnum samningsaðila NEAFC til Fiskistofu og skal skipstjóri í umsókn tilgreina nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og áætlað magn, eftir tegundum. Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um landaðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda aflans eða staðfest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir. Landi skip afla í höfnum samningsaðila NEAFC skal tilkynna þar til bæru yfirvaldi í viðkomandi ríki um komu skips til hafnar innan tiltekins frests sem ákveðinn er af hafnarríkinu í samræmi við reglur NEAFC um hafnarríkiseftirlit og framkvæmd þess. Tilkynningar skal senda með rafrænum hætti á heimasíðu NEAFC (https://psc.neafc.org). Til að geta sent slíkar tilkynningar þarf að vera skráður notandi (og er hvatt til tímanlegrar skráningar).

11. gr. Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út á grundvelli hennar, varða viðurlögum samkvæmt III. kafla laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og IV. kafla laga nr. 57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar. Við mat á brotum skal litið til reglna NEAFC um stjórn og eftirlit, eftir því sem við á.

12. gr. Heimild o.fl.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Samtímis fellur úr gildi reglugerð nr. 285/2014 um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).

Íslensk skip, sem stunda veiðar á samningssvæði NEAFC, skulu fara eftir reglum NEAFC um stjórn og eftirlit (e. NEAFC Scheme of Control and Enforcement) og öðrum ákvörðunum nefndarinnar. Íslenskum skipum er skylt að hafa aðgang að nýjasta eintaki reglnanna við veiðar hverju sinni, sem nálgast má rafrænt á vef nefndarinnar.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. maí 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Arnór Snæbjörnsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.