Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 9. apríl 2014

431/2013

Reglugerð um stjórn veiða á djúpsjávartegundum á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til veiða íslenskra skipa á djúpsjávartegundum á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) utan lögsögu ríkja.

2. gr.

Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda veiðar skv. 1. gr. án sérstaks leyfis Fiskistofu.

Fiskiskip skulu með sérstakri tilkynningu til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, með 24 tíma fyrirvara tilkynna þegar veiðar skv. veiðileyfi eru hafnar og tilkynna innan 12 tíma hvenær þeim lýkur. Eftirlitsstöðin telur saman sóknardaga íslenskra skipa. Samanlagður fjöldi sóknardaga íslenskra skipa á hverju almanaksári er 29 og skal Fiskistofa afturkalla öll útgefin leyfi skv. 1. mgr. þegar þeim fjölda sóknardaga er náð.

3. gr.

Við veiðar skv. 1. gr. skulu fiskiskip búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til Eftirlitsstöðvarinnar, um staðsetningu, stefnu og hraða skipsins á klukkustundar fresti.

Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að eftirlitsbúnaðurinn starfi eðlilega.

Ef eftirlitsbúnaðurinn bilar, skal gert við hann við komu í næstu höfn. Þar til búnaðinum verður komið í lag, skal senda á annan hátt upplýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða skipsins, á 4 klukkustunda fresti til Eftirlitsstöðvarinnar.

4. gr.

Íslenskum skipum, sem ekki hafa fengið leyfi til veiða skv. 1. mgr. 2. gr., er óheimilt, á samningssvæði NEAFC utan lögsögu ríkja, að veiða eftirtaldar djúpsjávartegundir:

1. Gjölnir Alepocehalus bairdii Baird's smooth head
2. Gjölnisætt Alepocephalus rostratus Risso's smooth head
3. Fjólumóri Antimora rostrata Blue antimora (Blue hake)
4. Stinglax Aphanopus carbo Black scabbard fish
5. Mattaháfur (Gíslaháfur o.fl.) Apristuris spp. Iceland catshark
6. Gulllax/Stóri gulllax Argentina silus Greater silver smelt
7. Serkur (Rauðserkur/Fagurserkur) Beryx spp. Alfonsinos
8. Keila Brosme brosme Tusk
9. Kornháfur Centrophorus granulosus Gulper shark
10. Rauðháfur Centrophorus squamosus Leafscale gulper shark
11. Svartháfur Centroscyllium fabricii Black dogfish
12. Gljáháfur Centroscymnus coelolepis Portuguese dogfish
13. Þorsteinsháfur Centroscymnus crepidater Longnose velvet dogfish
14. Tröllakrabbi Chacon (Geyron) affinis Deep-water red crab
15. Geirnyt Chimaera monstrosa Rabbit fish (Rattail)
16. Kragaháfur Chlamydoselachus anguineus Frilled shark
17. Hafáll Conger conger Conger eel
18. Slétti langhali Coryphaenoides rupestris Roundnose grenadier
19. Skarðaháfur Dalatias licha Kitefin shark
20. Flatnefur Deania calcea Birdbeak dogfish
21. Glyrnir Epigonus telescopus Black (Deep-water) cardinal fish
22. Dökkháfur Etmopterus princeps Greater lantern shark
23. Loðháfur Etmopterus spinax Velvet belly
24. Hringaháfur Galeus melastomus Blackmouth dogfish
25. Jensensháfur Galeus murinus Mouse catshark
26. Svartgóma Helicolenus dactylopterus Bluemouth (Blue mouth redfish)
27. Brandháfur Hexanchus griseus Bluntnose six-gilled shark
28. Búrfiskur Hoplostethus atlanticus Orange roughy
29. Búrfiskbróðir Hoplostethus mediterraneus Silver roughy (Pink)
30. Digurnefur Hydrolagus mirabilis Large-eyed rabbit fish (Ratfish)
31. Marbendill/Atlants-marbendill Lepidopus caudatus Silver scabbard fish (Cutless fish)
32. Dílamjóri Lycodesesmarkii Eelpout
33. Snarphali Marcrourus berglax Roughhead grenadier (Rough rattail)
34. Blálanga Molva dypterigia Blueling
35. Langa Molva molva Ling
36. Móra Mora moro Common mora
37. Kýrháfur Oxynotus paradoxus Sailfin roughshark (Sharpback shark)
38. Kólguflekkur Pagellus bogaraveo Red (blackspot) seabream
39. Litla brosma Phycis spp. Forkbeards
40. Blákarpi Polyprion americanus Wreckfish
41. Skjótta skata Raja hyperborean Arctic skate
42. Pólskata Rajafyllae Round skate
43. Þrændaskata Rajanidarosiensus Norwegian skate
44. Grálúða Rheinhardtius hippoglossoides Greenland halibut
45. Trjónufiskur Rhinochimaera atlantica Straightnose rabbitfish
46. Ekki til íslenskt heiti, en náskyld tegund er Færeyjaháfur Scymnodon ringens Knifetooth dogfish
47. Litli karfi Sebastes viviparus Small redfish (Norway haddock)
48. Hákarl Somniosus microcephalus Greenland shark
49. Miðjarðarhafskarfi Trachyscorpia cristulata Spiny (Deep-sea) Scorpionfish

Öllum íslenskum skipum er óheimilt, á samningssvæði NEAFC utan lögsögu ríkja, að veiða eftirtaldar djúpsjávartegundir:

1. Mattaháfur (Gíslaháfur o.fl.) Apristuris spp. Iceland catshark
2. Kornháfur Centrophorus granulosus Gulper shark
3. Rauðháfur Centrophorus squamosus Leafscale gulper shark
4. Svartháfur Centroscyllium fabricii Black dogfish
5. Gljáháfur Centroscymnus coelolepis Portuguese dogfish
6. Þorsteinsháfur Centroscymnus crepidater Longnose velvet dogfish
7. Kragaháfur Chlamydoselachus anguineus Frilled shark
8. Skarðaháfur Dalatias licha Kitefin shark
9. Flatnefur Deania calcea Birdbeak dogfish
10. Dökkháfur Etmopterus princeps Greater lantern shark
11. Loðháfur Etmopterus spinax Velvet belly
12. Hringaháfur Galeus melastomus Blackmouth dogfish
13. Jensensháfur Galeus murinus Mouse catshark
14. Brandháfur Hexanchus griseus Bluntnose six-gilled shark
15. Kýrháfur Oxynotus paradoxus Sailfin roughshark (Sharpback shark)
16. Ekki til íslenskt heiti, en náskyld tegund er Færeyjaháfur Scymnodon ringens Knifetooth dogfish
17. Hákarl Somniosus microcephalus Greenland shark
18. Búrfiskur Hoplostethus atlanticus Orange roughy
19. Beinhákarl Cetorhinus maximus Basking shark
20. Hámeri Lamna nasus Porbeagle
21. Háfur Squalus acanthias Spurdog

5. gr.

Frá 15. febrúar til 15. apríl eru allar veiðar óheimilar á Franshól, sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:

  1. 60°58'76 N - 27°27'32 V
  2. 60°56'02 N - 27°31'16 V
  3. 60°59'76 N - 27°43'48 V
  4. 61°03'00 N - 27°39'41 V

6. gr.

Netaveiðar eru óheimilar á meira dýpi en 200 metrar.

7. gr.

Fiskiskipum sem hafa leyfi skv. 1. mgr. 2. gr. og jafnframt leyfi til að stunda rækjuveiðar í Barentshafi (ICES svæði Ia), sbr. III. kafla reglugerðar um stjórn veiða á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) utan lögsögu ríkja, er heimilt að nota yfirpoka á seiðaskilju við rækjuveiðarnar.

8. gr.

Um tilkynningar vegna veiða skv. þessari reglugerð gilda ákvæði reglugerðar nr. 285/2014, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), með síðari breytingum.

9. gr.

Stundi skip veiðar skv. þessari reglugerð og almennar togveiðar í lögsögu Íslands í sömu veiðiferð skal halda afla sem þannig fæst aðgreindum frá öðrum afla um borð í veiðiskipi og skal hann veginn og skráður sérstaklega við löndun. Um vigtun afla fer eftir ákvæðum gildandi reglna um vigtun sjávarafla.

10. gr.

Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út á grundvelli hennar, skulu varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum, lögum nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og lögum nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum.

11. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, lögum nr. 116/2006 og lögum nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum, um stjórn fiskveiða, og öðlast þegar gildi.

Reglugerð þessi er sett til samræmis við skuldbindingar Íslands vegna aðildar að Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndinni (NEAFC).

Við gildistöku þessarar reglugerðar fellur úr gildi reglugerð nr. 471/2012 um (6.) breytingu á reglugerð nr. 1221/2008, um veiðieftirlit á samningssvæði NEAFC.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.