Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 1. mars 2017 – 29. feb. 2020 Sjá núgildandi
Sýnir breytingar gerðar 1. mars 2017 af rg.nr. 167/2017

423/2015

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 579/2014 um undanþágu frá tilteknum ákvæðum II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 852/2004 að því er varðar flutning á fljótandi olíum og fitu á sjó.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunarákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 258/2014, frá 13. desember 2014, öðlast eftirfarandieftirtaldar ESB-gerðgerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 579/2014 frá 28. maí 2014 um undanþágu frá tilteknum ákvæðum II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 852/2004 að því er varðar flutning á fljótandi olíum og fitu á sjó. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 258/2014, frá 12. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, frá 5. febrúar 2015, bls. 458.

  2.  Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/238 frá 19. febrúar 2016 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 579/2014 um undanþágu frá tilteknum ákvæðum II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 852/2004 að því er varðar flutning á fljótandi olíum og fitu á sjó. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79/2016, frá 29. apríl 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 27, frá 12. maí 2016, bls. 878.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

5. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. apríl 2015. 

 F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

 Ólafur Friðriksson. 

 Eggert Ólafsson. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.