Prentað þann 12. apríl 2025
422/2011
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EBESB) nr. 642/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun á sjónvörpum.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til á eftir lið 30 í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 1/2011, frá 11. febrúar 2011, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 642/2009 frá 22. júlí 2009 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2005/32/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun á sjónvörpum.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 8 og 15 í IV. kafla í II. viðauka og á eftir liðum 31 og 38 í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 310/2015, frá 11. desember 2015, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 801/2013 frá 22. ágúst 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1275/2008 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun raf- og rafeindatækja til heimilis- og skrifstofunota með tilliti til aflþarfar þeirra í reiðuham eða þegar slökkt er á þeim og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 642/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun á sjónvörpum.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 642/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10/2011, 24. febrúar 2011, bls. 266.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 1/2011 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 19/2011, 7. apríl 2011, bls. 1.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 801/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5/2016, 28. janúar 2016, bls. 815.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem notar orku, öðlast þegar gildi.
Iðnaðarráðuneytinu, 26. apríl 2011.
F. h. r.
Kristján Skarphéðinsson.
Þórður Reynisson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.