Fara beint í efnið

Prentað þann 23. apríl 2024

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 11. júlí 2013 – 25. jan. 2018 Sjá núgildandi
Sýnir breytingar gerðar 11. júlí 2013 af rg.nr. 644/2013

421/2011

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 641/2009.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til á eftir lið 30 í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 1/2011, frá 11. febrúar 2011, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 641 frá 22. júlí 2009 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2005/32/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun á sjálfstæðum hringrásardælum án ásþéttis og hringrásardælum án ásþéttis sem eru felldar inn í vörur.

 Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í 37. tölul. IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79/2013, frá 3. maí 2013, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 622/2012 frá 11. júlí 2012 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 641/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun á sjálfstæðum hringrásardælum án ásþéttis og hringrásardælum án ásþéttis sem eru felldar inn í vörur.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 641/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20/2011, 7. apríl 2011, bls. 193.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 1/2011 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 19/2011, 7. apríl 2011, bls. 1.

 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 622/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28/2013, 16. maí 2013, bls. 294.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem notar orku, öðlast þegar gildi.

 Iðnaðarráðuneytinu, 27. apríl 2011. 

 F. h. r.

 Kristján Skarphéðinsson. 

 Þórður Reynisson. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.