Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 11. júlí 2025

Stofnreglugerð

411/2025

Reglugerð um samræmda eftirlitsáætlun Sambandsins til margra ára fyrir árin 2025, 2026 og 2027 til þess að tryggja að farið sé að ákvæðum um hámarksgildi varnarefnaleifa og meta þau váhrif sem neytendur verða fyrir af völdum varnarefnaleifa í og á matvælum úr jurta- og dýraríkinu og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2023/731.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 17/2025 frá 7. febrúar 2025, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/989 frá 2. apríl 2024 um samræmda eftirlitsáætlun Sambandsins til margra ára fyrir árin 2025, 2026 og 2027 til þess að tryggja að farið sé að ákvæðum um hámarksgildi varnarefnaleifa og meta þau váhrif sem neytendur verða fyrir af völdum varnarefnaleifa í og á matvælum úr jurta- og dýraríkinu og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2023/731. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17 frá 20. mars 2025, bls. 528.

2. gr.

Við A-lið 1. töluliðar í viðauka II framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/989 bætist eftirfarandi:

IS 12
NO 12

3. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Reglugerð nr. 503/2024 um samræmda eftirlitsáætlun fyrir árin 2024, 2025 og 2026 til þess að tryggja að farið sé að ákvæðum um hámarksgildi varnarefnaleifa og meta þau váhrif sem neytendur verða fyrir af völdum varnarefnaleifa í og á matvælum úr jurta- og dýraríkinu skal gilda til 1. september 2025 fyrir sýni sem prófuð voru árið 2024.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 4. apríl 2025.

Hanna Katrín Friðriksson.

Svava Pétursdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.