Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 12. júlí 2025

Stofnreglugerð

405/2025

Reglugerð um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2105 um synjun leyfis fyrir heilsufullyrðingu er varðar matvæli og vísar hvorki til minnkunar á sjúkdómsáhættu né til þroskunar eða heilbrigðis barna.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 274/2024 frá 6. desember 2024, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2105 frá 31. júlí 2024 um synjun leyfis fyrir heilsufullyrðingu er varðar matvæli og vísar hvorki til minnkunar á sjúkdómsáhættu né til þroskunar eða heilbrigðis barna. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 807.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 26. mars 2025.

Hanna Katrín Friðriksson.

Svava Pétursdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.