Fara beint í efnið

Prentað þann 3. maí 2024

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 7. júlí 2016 – 21. feb. 2018 Sjá núgildandi
Sýnir breytingar gerðar 7. júlí 2016 af rg.nr. 605/2016

388/2013

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 392/2012 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar þurrkara til heimilisnota.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 11c í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2013, frá 1. febrúar 2013, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 392/2012 frá 1. mars 2012 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2030/10/ESB að því er varðar orkumerkingar þurrkara til heimilisnota.

 Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 4c, 4e, 4i, 4j, 4k, 4l, 4m, 4n, 4s, 4t, 11c, 11e, 11i, 11j, 11k, 11l, 11m, 11n, 11s og 11t í kafla IV í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 24/2016, frá 5. febrúar 2016, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

 Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 518/2014 frá 5. mars 2014 um breytingu á framseldum reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1059/2010, (ESB) nr. 1060/2010, (ESB) nr. 1061/2010, (ESB) nr. 1062/2010, (ESB) nr. 626/2011, (ESB) nr. 392/2012, (ESB) nr. 874/2012, (ESB) nr. 665/2013, (ESB) nr. 811/2013 og (ESB) nr. 812/2013 að því er varðar merkingu orkutengdra vara á Netinu.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 392/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20/2013, 28. mars 2013, bls. 393.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2013, bíður birtingar.

 Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins (ESB) nr. 518/2014 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18/2016, 31. mars 2016, bls. 253.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun heimilistækja o.fl., öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 398/1996, með síðari breytingum.

 Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 18. apríl 2013. 

 F. h. r.

 Kristján Skarphéðinsson. 

 Ólafur Egill Jónsson. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.