Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 4. maí 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 30. apríl 2013 – 7. júlí 2016 Sjá núgildandi

386/2013

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 626/2011 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/EB að því er varðar orkumerkingar loftræstisamstæða og viftna.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í tölul. 11m í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 219/2012, frá 7. desember 2012, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 626/2011 frá 4. maí 2011 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2030/10/ESB að því er varðar orkumerkingar loftræstisamstæðna og viftna.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 626/2011 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20/2013, 28. mars 2013, bls. 1112.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 219/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 18/2013, 21. mars 2013, bls. 24.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun heimilistækja o.fl., öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 912/2004, með síðari breytingum.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. apríl 2013.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Ólafur Egill Jónsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.