Prentað þann 5. des. 2025
385/2025
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 460/2024 um strandveiðar.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir 1. málsl. 1. mgr. kemur: Umsóknir um leyfi til strandveiða skulu berast Fiskistofu fyrir 22. apríl ár hvert og skal í umsókn tilgreina upphafsdag strandveiða innan strandveiðitímabils skv. 1. mgr. 2. gr.
- Á eftir 2. málsl. 4. mgr. koma tveir nýir málsliðir sem verða 3. og 4. málsl., svohljóðandi: Um borð í hverri strandveiðiferð skal vera einn einstaklingur sem er lögskráður á skipið og á að lágmarki beint eða óbeint í gegnum lögaðila, meira en 50% eignarhlut í skipinu. Eignarhald skips ræðst af skráningu í skipaskrá Samgöngustofu og eignarhald lögaðila miðast við skráningu raunverulegs eiganda hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.
- Í stað "og 2." í 3. málsl. 4. mgr. kemur: til 4.
- Á eftir 1. málsl. 5. mgr. kemur nýr málsl. sem verður 2. málsl., svohljóðandi: Eigandi lögaðila sem er lögskráður á fiskiskip á standveiðitímabilinu skv. 1. mgr. 2. gr. skal eiga meira en 50% í lögaðilanum.
2. gr.
Við ákvæði 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, sem verður 9. töluliður, svohljóðandi: Skráning aflaupplýsinga við strandveiðar fer fram samkvæmt ákvæðum reglugerðar um stafræna skráningu og skil aflaupplýsinga, nr. 307/2023. Við vigtun á hafnarvog skal löggiltur vigtarmaður tengja saman aflaskráningu við það auðkenni sem aflaupplýsingar strandveiðibáts hefur fengið með stafrænni skráningu og skilum skipstjóra úr hverri veiðiferð.
3. gr.
Á eftir orðunum "um stjórn fiskveiða" í 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: og laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. a. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða og 30. gr. laga nr. 57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 1. apríl 2025.
Hanna Katrín Friðriksson.
Kolbeinn Árnason.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.