Prentað þann 22. nóv. 2024
380/2018
Reglugerð um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
1. gr. Almenn ákvæði.
Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.
Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktanir Evrópusambandsins er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir eru sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.
2. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:
1. | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/2074 frá 13. nóvember 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1. | ||
1.1. | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/90 frá 22. janúar 2018 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, fylgiskjal 1.1. | ||
1.3 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/901 frá 25. júní 2018 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.3. | ||
1.4 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/1656 frá 6. nóvember 2018 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.4. | ||
1.5 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/1171 frá 8. júlí 2019 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.5. | ||
1.6 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/1596 frá 26. september 2019 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.6. | ||
1.7 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/1893 frá 11. nóvember 2019 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.7. | ||
1.8 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/898 frá 29. júní 2020 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.8. | ||
1.9 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/1700 frá 12. nóvember 2020 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.9. | ||
1.10 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/276 frá 22. febrúar 2021 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.10. | ||
1.11 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/1965 frá 11. nóvember 2021 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.11. | ||
1.12 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2201 frá 10. nóvember 2022 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.12. | ||
1.13 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.13. | ||
2. | Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/2063 frá 13. nóvember 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2. | ||
2.1. | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/88 frá 22. janúar 2018 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, fylgiskjal 2.1. | ||
2.2 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/899 frá 25. júní 2018 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.2. | ||
2.3 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/1653 frá 6. nóvember 2018 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.3. | ||
2.4 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2019/1169 frá 8. júlí 2019 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.4. | ||
2.5 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2019/1586 frá 26. september 2019 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.5. | ||
2.6 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2019/1889 frá 11. nóvember 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.6. | ||
2.7 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2019/1891 frá 11. nóvember 2019 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.7. | ||
2.8 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2020/897 frá 29. júní 2020 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.8. | ||
2.9 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2020/1696 frá 12. nóvember 2020 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.9. | ||
2.10 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/275 frá 22. febrúar 2021 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.10. | ||
2.11 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/1959 frá 11. nóvember 2021 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.11. | ||
2.12 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/2194 frá 10. nóvember 2022 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.12. | ||
2.13 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/2694 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.13. |
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.
Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.
3. gr. Aðlögun.
Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:
- ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins ("EB", "ESB", "Bandalagsins" eða "sameiginlega markaðarins") eiga við um íslenska ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,
- ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana þess gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,
- tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,
- tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,
- tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,
- utanríkisráðuneytið er hið lögbæra stjórnvald á Íslandi, vefsetur með frekari upplýsingum er:
https://www.stjornarradid.is/verkefni/utanrikismal/lagamal/thvingunaradgerdir/
4. gr. Tilkynning.
Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.
5. gr. Undanþágur frá þvingunaraðgerð.
Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglugerð þessa en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.
6. gr. Viðurlög.
Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.
7. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 20. mars 2018.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Sturla Sigurjónsson.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2017/2074 frá 13. nóvember 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum 29. gr.,
með hliðsjón af tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum, og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Sambandið hefur enn þungar áhyggjur af því að lýðræði, réttarríkinu og mannréttindum fari stöðugt aftur í Venesúela.
2) Hinn 15. maí 2017 samþykkti ráðið niðurstöður þar sem allir stjórnmálamenn og -stofnanir í Venesúela eru hvött til þess að vinna með uppbyggilegum hætti að lausn á ástandinu í landinu, jafnframt því að virða að fullu réttarríkið og mannréttindi, lýðræðisstofnanir og þrískiptingu valds. Þar kom einnig fram að með því að sleppa pólitískum andstæðingum úr fangelsi og virða stjórnarskrárbundin réttindi væru stigin þýðingarmikil skref í átt að því að byggja upp traust og styðja landið til stjórnmálalegs stöðugleika að nýju.
3) Sambandið hefur ítrekað látið í ljósi fullan stuðning sinn við það framtak í Venesúela að greiða fyrir knýjandi, uppbyggilegum og árangursríkum skoðanaskiptum milli ríkisstjórnarinnar og meirihluta þingsins í því skyni að skapa skilyrði fyrir friðsamlegar lausnir á þeim margþættu áskorunum sem landið stendur frammi fyrir.
4) Sambandið hefur eindregið hvatt til þess að greitt verði fyrir samstarfi við utanaðkomandi aðila til þess að takast á við þær þarfir þjóðarinnar sem eru mest aðkallandi og heitið því að hjálpa Venesúela við að finna friðsamlegar og lýðræðislegar lausnir, m.a. með því að styðja við svæðisbundið og alþjóðlegt framtak í þessu skyni.
5) Hinn 26. júlí 2017 lét Sambandið í ljós áhyggjur af fjölda frásagna af mannréttindabrotum og óhóflegri beitingu valds og hvatti stjórnvöld í Venesúela til þess að virða stjórnarskrá landsins („stjórnarskrána“) og réttarríkið og tryggja grundvallarréttindi og mannfrelsi, m.a. réttinn til friðsamlegra mótmæla.
6) Hinn 2. ágúst 2017 lét Sambandið í ljósi að það harmaði eindregið þá ákvörðun stjórnvalda í Venesúela að halda áfram með kosningar til stjórnlagaþings en sú ákvörðun leiddi til þess að ástandið í Venesúela versnaði til muna og jók hættuna á því að grafið yrði undan öðrum lögmætum stofnunum sem gert er ráð fyrir í stjórnarskránni, m.a. þjóðþinginu. Jafnframt því að hvetja alla aðila til að forðast ofbeldi og stjórnvöld til þess að tryggja að öll mannréttindi verði virt að fullu og öllu og að lýsa sig reiðubúið til þess að veita aðstoð í öllum málum sem gætu létt þjóðinni daglegt ástand í Venesúela hefur Sambandið einnig lýst sig reiðubúið til þess að auka í áföngum viðbrögð sín ef áfram verður grafið undan meginreglum lýðræðisins og stjórnarskráin ekki virt.
7) Í þessu samhengi og í samræmi við yfirlýsingu Sambandsins frá 2. ágúst 2017 ætti að beina markvissum þvingunaraðgerðum gegn tilteknum einstaklingum og lögaðilum sem bera ábyrgð á alvarlegum mannréttindabrotum eða bælingu borgaralegs samfélags og lýðræðislegrar stjórnarandstöðu og aðilum, rekstrareiningum og stofnunum sem með aðgerðum sínum, stefnum eða starfsemi grafa undan lýðræði eða réttarríkinu í Venesúela, svo og aðilum, rekstrareiningum og stofnunum sem tengjast þeim.
8) Enn fremur er rétt, í ljósi hættunnar á frekara ofbeldi, óhóflegri beitingu valds og mannréttindabrotum, að grípa til þvingunaraðgerða í formi vopnasölubanns, auk sértækra aðgerða til að setja skorður við búnaði sem nota má til bælingar innanlands og til að koma í veg fyrir misnotkun fjarskiptabúnaðar.
9) Þvingunaraðgerðir ættu að koma í áföngum, vera markvissar, sveigjanlegar og afturkallanlegar, ekki hafa áhrif á almenning og ættu að miða að því að ýta undir trúverðugt og marktækt ferli sem getur leitt til samninga um friðsamlega lausn.
10) Frekari aðgerða er þörf af hálfu Sambandsins til þess að hrinda tilteknum aðgerðum í framkvæmd.
SAMÞYKKT ÁKVÖRÐUN ÞESSA:
I. KAFLI ÚTFLUTNINGSTAKMARKANIR
1. gr.
1. Lagt er bann við því að ríkisborgarar aðildarríkja selji, afhendi, tilfæri eða flytji út hvers kyns vopn og tengd hergögn, þ.m.t. vopn og skotfæri, herfarartæki og -búnað, búnað sem ekki er ætlaður ríkisher og varahluti í fyrrnefnd tól og tæki, til Venesúela, eða að það sé gert frá yfirráðasvæðum aðildarríkja eða að skip undir fána þeirra eða loftför þeirra séu notuð í því skyni, hvort sem fyrrnefnd tæki og tól eru upprunnin á yfirráðasvæðum þeirra eður ei.
2. Lagt er bann við því:
a) að veita tækniaðstoð, miðlunarþjónustu og aðra þjónustu, sem tengist herstarfsemi og því að útvega, framleiða, viðhalda og nota hvers kyns vopn og tengd hergögn, þ.m.t. vopn og skotfæri, herfarartæki og -búnað, búnað sem ekki er ætlaður ríkisher og varahluti í fyrrnefnd tól og tæki, með beinum eða óbeinum hætti, til handa einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Venesúela eða til notkunar í því landi,
b) að veita fjármagn eða fjárhagsaðstoð sem tengist herstarfsemi, þ.m.t., einkum og sér í lagi styrki, lán og útflutningsgreiðsluvátryggingar, sem og tryggingar og endurtryggingar, vegna sölu, afhendingar, tilfærslu eða útflutnings vopna og tengdra hergagna eða sem tengist því að veita tengda tækniaðstoð, miðlunarþjónustu og aðra þjónustu, með beinum eða óbeinum hætti, til handa aðila, rekstrareiningu eða stofnun í Venesúela eða til notkunar í því landi.
2. gr.
Bannið í 1. gr. gildir ekki um efndir samninga sem gerðir voru fyrir 13. nóvember 2017 eða fylgisamninga sem eru nauðsynlegir til að efna slíka samninga, að því tilskildu að þeir séu í samræmi við sameiginlega afstöðu ráðsins 2008/944/SSUÖ (1), einkum viðmiðanir 2. gr. hennar, og að einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir sem leitast við að framkvæma viðkomandi samning hafi tilkynnt lögbæru stjórnvaldi þess aðildarríkis, þar sem þeir eða þær hafa staðfestu, um samninginn innan 5 virkra daga frá gildistöku þessarar ákvörðunar.
3. gr.
1. Lagt er bann við því að ríkisborgarar aðildarríkjanna selji, afhendi, tilfæri eða flytji út búnað til Venesúela, sem nota má til bælingar innanlands, eða að slíkt sé gert frá yfirráðasvæðum aðildarríkjanna, eða að notuð séu til þess skip sem sigla undir fána þeirra eða loftför þeirra, hvort sem vörurnar eru upprunnar á yfirráðasvæðum þeirra eða ekki.
2. Lagt er bann við því:
a) að veita tækniaðstoð, miðlunarþjónustu og aðra þjónustu, sem tengist búnaði sem nota má til bælingar innanlands og því að útvega, framleiða, viðhalda og nota slíkan búnað, með beinum eða óbeinum hætti, til handa einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Venesúela eða til notkunar í því landi,
b) að veita fjármagn eða fjárhagsaðstoð, sem tengist búnaði sem nota má til bælingar innanlands, þ.m.t., einkum og sér í lagi, styrki, lán og útflutningsgreiðsluvátryggingar, sem og tryggingar og endurtryggingar, vegna sölu, afhendingar, tilfærslu eða útflutnings slíks búnaðar, eða sem tengist því að veita tengda tækniaðstoð, miðlunarþjónustu og aðra þjónustu, beint eða óbeint, til handa aðila, rekstrareiningu eða stofnun í Venesúela eða til notkunar þar í landi.
3. Sambandið skal gera nauðsynlegar ráðstafanir til að ákvarða hvaða hlutir skuli falla undir þessa grein.
4. gr.
1. Ákvæði 1. og 3. gr. gilda ekki um:
a) sölu, afhendingu, tilfærslu eða útflutning óbanvæns herbúnaðar eða búnaðar, sem nota má til bælingar innanlands en er eingöngu ætlaður til nota í mannúðar- eða verndarskyni eða vegna áætlana um stofnanauppbyggingu á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) og Sambandsins og aðildarríkja þess eða svæðisbundinna stofnana og undirsvæðisstofnana, eða hergagna sem eru ætluð til notkunar í hættustjórnunaraðgerðum SÞ og Sambandsins eða svæðisbundinna stofnana og undirsvæðisstofnana,
b) sölu, afhendingu, tilfærslu eða útflutning jarðsprengjuhreinsunarbúnaðar og hergagna til notkunar við jarðsprengjuhreinsunaraðgerðir,
c) viðhald óbanvæns búnaðar sem sjóher og strandgæsla Venesúela kunna að nota og er einungis ætlaður til landamæravörslu, vegna stöðugleika svæða og til að stöðva fíkniefni,
d) veitingu fjármagns og fjárhagsaðstoðar sem tengist þeim búnaði eða hergögnum sem um getur í a-, b- og c-lið,
e) veitingu tækniaðstoðar sem tengist þeim búnaði eða hergögnum sem um getur í a-, b- og c-lið,
að því tilskildu að viðkomandi lögbært stjórnvald hafi samþykkt fyrrnefndan útflutning fyrir fram.
2. Ákvæði 1. og 3. gr. gilda ekki um hlífðarfatnað, þ.m.t. skotheld vesti og herhjálma, sem starfsfólk SÞ, starfsfólk Sambandsins eða aðildarríkja þess, fulltrúar fjölmiðla og starfsmenn hjálpar- og þróunarstofnana og tengt starfsfólk hefur flutt tímabundið til Venesúela eingöngu til eigin nota.
5. gr.
1. Lagt er bann við sölu, afhendingu, tilfærslu eða útflutningi á búnaði, tækni eða hugbúnaði, sem er fyrst og fremst ætlaður til vöktunar eða hlerunar af hálfu eða fyrir hönd einræðisstjórnarinnar í Venesúela á samskiptum á Netinu og í síma um farsíma- eða fastlínukerfi í Venesúela, m.a. að veita hvers kyns þjónustu vegna fjarskipta- eða netvöktunar eða hlerunar, og við því að veita fjárhags- og tækniaðstoð við að setja upp, reka eða uppfæra fyrrnefndan búnað, tækni eða hugbúnað af hálfu ríkisborgara aðildarríkja eða frá yfirráðasvæðum aðildarríkja.
2. Þrátt fyrir 1. mgr. geta aðildarríkin heimilað sölu, afhendingu, tilfærslu eða útflutning á búnaði, tækni eða hugbúnaði, m.a. að veita hvers kyns þjónustu vegna fjarskipta- eða netvöktunar eða hlerunar, auk tengdrar fjárhags- og tækniaðstoðar, sem um getur í 1. mgr., ef þau hafa gilda ástæðu til að ætla að ríkisstjórn Venesúela, opinberar stofnanir, fyrirtæki eða skrifstofur eða einhverjir aðilar eða rekstrareiningar, sem koma fram fyrir þeirra hönd eða starfa eftir fyrirmælum þeirra, muni ekki nota búnaðinn, tæknina eða hugbúnaðinn til bælingar innanlands.
Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er samkvæmt þessari málsgrein innan fjögurra vikna frá því að hún er veitt.
3. Sambandið skal gera nauðsynlegar ráðstafanir til að ákvarða hverjir þeir þættir eru sem ákvæði þessarar greinar skulu taka til.
II. KAFLI AÐGANGSTAKMARKANIR
6. gr.
1. Aðildarríki skulu gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að hindra að inn á yfirráðasvæði þeirra komi eða um þau fari:
a) einstaklingar sem bera ábyrgð á alvarlegum mannréttindabrotum eða bælingu borgaralegs samfélags og lýðræðislegrar stjórnaraðstöðu í Venesúela eða
b) einstaklingar sem með aðgerðum sínum, stefnum eða starfsemi grafa með öðrum hætti undan lýðræði eða réttarríkinu í Venesúela,
sbr. skrána í I. viðauka.
2. Ákvæði 1. mgr. skuldbinda ekki aðildarríki til að meina eigin ríkisborgurum komu inn á yfirráðasvæði þess.
3. Ákvæði 1. mgr. hafa ekki áhrif á þau tilvik þegar aðildarríki er skuldbundið að þjóðarétti, nánar tiltekið:
a) sem gistiland alþjóðlegrar milliríkjastofnunar,
b) sem gistiland alþjóðlegrar ráðstefnu sem SÞ boða til eða fram fer á þeirra vegum,
c) samkvæmt marghliða samningi þar sem kveðið er á um forréttindi og friðhelgi eða
d) samkvæmt sáttasamningnum frá 1929 (Lateran-samningnum) sem Páfastóll (Vatíkanborgríkið) og
Ítalía gerðu sín í milli.
4. Ákvæði 3. mgr. skulu einnig teljast gilda þegar aðildarríki er gistiland Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE).
5. Ráðinu skal tilkynnt um það með tilhlýðilegum hætti ef aðildarríki veitir undanþágu skv. 3. eða 4. mgr.
6. Aðildarríki geta veitt undanþágur frá þeim aðgerðum, sem kveðið er á um í 1. mgr., ef ferð er réttlætt með því að vísa til ríkra mannúðarástæðna eða með þátttöku í ríkjafundum og fundum sem Sambandið styður eða sem eru haldnir af því aðildarríki sem fer með formennsku í ÖSE hverju sinni, þar sem fara fram pólitísk skoðanaskipti sem efla með beinum hætti lýðræði, mannréttindi og réttarríkið í Venesúela.
7. Aðildarríki, sem óskar eftir að veita undanþágur, sem um getur í 6. mgr., skal tilkynna ráðinu það skriflega. Undanþágan telst veitt nema einn eða fleiri fulltrúar ráðsins andmæli því skriflega innan tveggja virkra daga frá því að tilkynningu um fyrirhugaða undanþágu er veitt viðtaka. Ef einn eða fleiri fulltrúar í ráðinu hreyfa slíkum andmælum getur ráðið tekið ákvörðun um að veita fyrirhugaða undanþágu með auknum meirihluta.
8. Í þeim tilvikum þegar aðildarríki heimilar, skv. 3., 4., 6. og 7. mgr., komu aðila, sem eru á skrá í I. viðauka, inn á yfirráðasvæði sitt eða ferð þeirra um það skal heimildin takmörkuð við þann tilgang sem hún er veitt í og viðkomandi einstaklinga.
III. KAFLI FRYSTING FJÁRMUNA OG EFNAHAGSLEGS AUÐS
7. gr.
1. Frysta skal alla fjármuni og efnahagslegan auð sem tilheyra eða eru í eigu, í vörslu eða undir stjórn:
a) einstaklinga, lögaðila, rekstrareininga eða stofnana sem bera ábyrgð á alvarlegum mannréttindabrotum eða bælingu borgaralegs samfélags og lýðræðislegrar stjórnaraðstöðu í Venesúela,
b) einstaklinga, lögaðila, rekstrareininga eða stofnana sem með aðgerðum sínum, stefnum eða starfsemi grafa með öðrum hætti undan lýðræði eða réttarríkinu í Venesúela,
sbr. skrána í I. viðauka.
2. Frysta skal alla fjármuni og efnahagslegan auð sem tilheyra eða eru í eigu, í vörslu eða undir stjórn einstaklinga eða lögaðila, rekstrareininga og stofnana sem tengjast aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem um getur í 1. mgr., sbr. skrána í II. viðauka.
3. Engir fjármunir eða efnahagslegur auður skal gerður aðgengilegur þeim einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru á skrá í I. eða II. viðauka, með beinum eða óbeinum hætti, eða koma þeim til góða.
4. Lögbært stjórnvald í aðildarríki getur heimilað að tilteknir frystir fjármunir eða efnahagslegur auður verði affrystur eða að tilteknir fjármunir eða efnahagslegur auður verði gerður aðgengilegur samkvæmt þeim skilyrðum sem það telur viðeigandi, eftir að hafa gengið úr skugga um að fjármunirnir eða hinn efnahagslegi auður sé:
a) nauðsynlegur til að uppfylla grunnþarfir þeirra einstaklinga, lögaðila, rekstrareininga eða stofnana sem eru á skrá í I. eða II. viðauka og aðstandenda á framfæri einstaklinganna, þ.m.t. greiðslur vegna matarkaupa, leigu eða veðlána, lyfja og læknismeðferðar, skattheimtu, tryggingariðgjalda og opinberra þjónustugjalda,
b) einungis ætlaður til að greiða hæfilega sérfræðiþóknun og til endurgreiðslu kostnaðar vegna lögfræðiþjónustu,
c) eingöngu ætlaður til að greiða þóknanir eða þjónustugjöld fyrir venjubundna vörslu eða umsýslu frystra fjármuna eða efnahagslegs auðs,
d) nauðsynlegur vegna óvenjulegra útgjalda, að því tilskildu að viðkomandi lögbært stjórnvald hafi kunngjört lögbærum stjórnvöldum hinna aðildarríkjanna og framkvæmdastjórninni forsendurnar fyrir því að það telji að veita ætti sérstaka heimild a.m.k. tveimur vikum áður en heimildin er veitt, eða
e) til þess að greiða inn á eða út af reikningi sendi- eða ræðiskrifstofu eða alþjóðastofnunar sem nýtur friðhelgi að þjóðarétti, að því leyti sem slíkar greiðslur eru ætlaðar til nota í opinberum tilgangi af hálfu viðkomandi sendi- eða ræðiskrifstofu eða alþjóðastofnunar.
Hlutaðeigandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er samkvæmt þessari málsgrein.
5. Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. geta lögbær stjórnvöld í aðildarríki heimilað að tilteknir frystir fjármunir eða efnahagslegur auður verði affrystur, að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:
a) að fjármunirnir eða hinn efnahagslegi auður sé andlag ákvörðunar gerðardóms, sem fyrir liggur fyrir þann dag þegar viðkomandi einstaklingur, lögaðili, rekstrareining eða stofnun, er um getur í 1. eða 2. mgr., var færð á skrá í I. eða II. viðauka, eða andlag ákvörðunar dómstóls eða stjórnvalds innan Sambandsins eða ákvörðunar dómstóls sem er aðfararhæf í viðkomandi aðildarríki fyrir eða eftir þann dag,
b) að fjármunirnir eða hinn efnahagslegi auður verði einungis notaður til að uppfylla kröfur, sem fyrrnefnd ákvörðun tryggir eða sem viðurkennt er að séu gildar samkvæmt henni, innan þeirra marka sem gildandi lög og reglur um réttindi þeirra aðila, sem eiga slíkar kröfur, kveða á um,
c) að ákvörðunin sé ekki í þágu einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar sem er á skrá í I. og
II. viðauka og
d) að viðurkenning ákvörðunarinnar stríði ekki gegn allsherjarreglu í hlutaðeigandi aðildarríki.
Hlutaðeigandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er samkvæmt þessari málsgrein.
6. Ákvæði 1. og 2. gr. koma ekki í veg fyrir að einstaklingur, lögaðili, rekstrareining eða stofnun sem er á skrá í I. eða II. viðauka geti innt af hendi greiðslu samkvæmt samningi eða samkomulagi, sem einstaklingur, lögaðili, rekstrareining eða stofnun á skrá í I. eða II. viðauka gerðu, eða samkvæmt skuldbindingu sem viðkomandi bar að sinna, fyrir þann dag er einstaklingurinn, lögaðilinn, rekstrareiningin eða stofnunin hafði verið færð á skrá, að því tilskildu að hlutaðeigandi aðildarríki hafi ákvarðað að greiðslan brjóti ekki í bága við 3. mgr.
7. Ákvæði 3. mgr. gilda ekki um viðbót við frysta reikninga í formi:
a) vaxta eða annarra tekna af fyrrnefndum reikningum,
b) greiðslna samkvæmt samningum, samkomulagi eða skuldbindingum sem gengið var frá eða urðu til fyrir þann dag þegar fyrrnefndir reikningar urðu viðfang aðgerðanna, sem kveðið er á um í 1., 2. og 3. mgr., eða
c) greiðslna sem inna ber af hendi samkvæmt ákvörðunum dóms, stjórnvalds eða gerðardóms sem teknar eru í Sambandinu eða eru aðfararhæfar í hlutaðeigandi aðildarríki,
að því tilskildu að slíkir vextir, aðrar tekjur og greiðslur falli áfram undir aðgerðirnar sem kveðið er á um í 1. eða 2. mgr.
IV. KAFLI ALMENN ÁKVÆÐI OG LOKAÁKVÆÐI
8. gr.
1. Ráðið skal einróma, að fram kominni tillögu frá aðildarríki eða æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum, ákveða og gera breytingar á skránum í I. og II. viðauka.
2. Ráðið skal tilkynna ákvörðunina, sem um getur í 1. mgr., m.a. ástæður þess að viðkomandi er færður á skrá, þeim einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem í hlut á, annaðhvort milliliðalaust, ef heimilisfang viðkomandi er þekkt, eða með útgáfu tilkynningar, þar sem fyrrnefndum aðila, rekstrareiningu eða stofnun býðst að leggja fram athugasemdir sínar.
3. Ef athugasemdir eru gerðar eða ný, traust gögn lögð fram skal ráðið endurskoða ákvörðunina, sem um getur í 1. mgr., og upplýsa hlutaðeigandi einstakling, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun um niðurstöðuna.
9. gr.
1. Í I. og II. viðauka skal tilgreina ástæður þess að einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar og stofnanir, sem um getur í 1. mgr. 6. gr. og 1. og 2. mgr. 7. gr., eru færð á skrá.
2. Í I. og II. viðauka skulu einnig vera nauðsynlegar upplýsingar, ef þær liggja fyrir, til að bera kennsl á viðkomandi einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir. Að því er einstaklinga varðar geta þessar upplýsingar verið nöfn þeirra, m.a. tökuheiti, fæðingardagur, -ár og -staður, ríkisfang, númer vegabréfs og kennivottorðs, kyn, heimilisfang, ef það er þekkt, og hlutverk eða starf. Að því er varðar lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir geta þessar upplýsingar verið m.a. nöfn, skráningarstaður og -dagsetning, skráningarnúmer og starfsstöð.
10. gr.
Lagt er bann við því að taka þátt, vitandi vits og af ásetningi, í starfsemi sem miðar að því, eða hefur þau áhrif, að aðgerðirnar, sem mælt er fyrir um í þessari ákvörðun, séu sniðgengnar.
11. gr.
Óheimilt er að efna kröfur sem tengjast samningi eða viðskiptum þegar aðgerðir, sem gripið er til samkvæmt þessari ákvörðun, hafa áhrif á framkvæmd þeirra, með beinum eða óbeinum hætti, í heild eða að hluta, þ.m.t. kröfur um skaðleysisbætur eða aðrar ámóta kröfur, t.d. bótakröfur eða kröfur samkvæmt ábyrgðarloforði, einkum framlengingar- eða greiðslukröfur vegna skuldabréfa, ábyrgðar eða skaðleysisbóta og þá sérstaklega fjárhagslegrar ábyrgðar eða fjárhagslegra skaðleysisbóta, í hvaða mynd sem er, ef slíkar kröfur eru settar fram af:
a) tilgreindum einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru á skrá í I. eða II. viðauka,
b) einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem starfar gegnum eða fyrir hönd einhvers þeirra aðila, rekstrareininga eða stofnana er um getur í a-lið.
12. gr.
Til þess að þær aðgerðir, sem eru settar fram í ákvörðun þessari, hafi sem mest áhrif skal Sambandið hvetja þriðju ríki til að samþykkja þvingunaraðgerðir í líkingu við þær sem kveðið er á um í ákvörðun þessari.
13. gr.
Ákvörðun þessi gildir til 14. nóvember 2018.
Hún skal vera til stöðugrar endurskoðunar. Hana skal framlengja eða henni breyta, eftir því sem við á, telji ráðið að markmiðum hennar hafi ekki verið náð.
14. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi daginn sem hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Gjört í Brussel 13. nóvember 2017.
Fyrir hönd ráðsins,
F. MOGHERINI forseti.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2018/90 frá 22. janúar 2018 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela
I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 329/2007 er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við reglugerð þessa (Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB:
http://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/HTML/?uri=CELEX:32018D0090&qid=1517310331074&from=EN.
Síðari breytingar og uppfærslur viðaukans öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á vef Stjórnartíðinda ESB (http://eur-lex.europa.eu), sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.
REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2017/2063 frá 13. nóvember 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
með hliðsjón af ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/2074 frá 13. nóvember 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela (1),
með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórninni, og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Í ljósi þess að lýðræði, réttarríkinu og mannréttindum fer stöðugt aftur í Venesúela hefur Sambandið ítrekað látið í ljósi áhyggjur sínar og hvatt alla stjórnmálamenn og -stofnanir í Venesúela til þess vinna með uppbyggilegum hætti að lausn á ástandinu í landinu, jafnframt því að virða að fullu réttarríkið og mannréttindi, lýðræðisstofnanir og þrískiptingu valds.
2) Hinn 13. nóvember 2017 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 þar sem m.a. er kveðið á um bann við útflutningi vopna og búnaðar sem nota má til bælingar innanlands, bann við útflutningi eftirlitsbúnaðar og um frystingu eigna og efnahagslegs auðs tiltekinna aðila, rekstrareininga og stofnana sem bera ábyrgð á alvarlegum mannréttindabrotum eða bælingu borgaralegs samfélags og lýðræðislegrar stjórnarandstöðu, og aðila, rekstrareininga og stofnana sem með aðgerðum sínum, stefnum eða starfsemi grafa með öðrum hætti undan lýðræði eða réttarríkinu í Venesúela, svo og aðila, rekstrareininga og stofnana sem tengjast þeim.
3) Tilteknar aðgerðir, sem kveðið er á um í ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074, falla undir gildissvið sáttmálans og því er löggjöf á vettvangi Sambandsins nauðsynleg til þess að hrinda þeim í framkvæmd, einkum til að tryggt sé að rekstraraðilar í öllum aðildarríkjunum beiti þeim með samræmdum hætti.
4) Í þessari reglugerð eru þau grundvallarréttindi virt og þeim meginreglum fylgt sem eru viðurkennd, einkum í sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, nánar tiltekið rétturinn til raunhæfs úrræðis til að leita réttar síns og til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi og rétturinn til verndar persónuupplýsingum. Beita ætti ákvæðum reglugerðar þessarar með hliðsjón af þessum réttindum.
5) Vald til að breyta skránum í IV. og V. viðauka við reglugerð þessa ætti að vera í höndum ráðsins til þess að tryggja samræmi við gildandi aðferð við að breyta og endurskoða I. og II. viðauka við ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074.
6) Vegna framkvæmdar reglugerðar þessarar og til að skapa sem mesta réttarvissu innan Sambandsins ætti að birta nöfn og aðrar viðeigandi upplýsingar um þá einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir sem til stendur að frysta fjármuni og efnahagslegan auð hjá samkvæmt þessari reglugerð. Öll vinnsla persónuupplýsinga ætti að vera í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 45/2001 (2) og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 95/46/EB (3).
7) Aðildarríkin og framkvæmdastjórnin ættu að miðla upplýsingum hvert til annars um þær aðgerðir sem gripið er til samkvæmt þessari reglugerð og um aðrar upplýsingar sem máli skipta og þau búa yfir í tengslum við þessa reglugerð.
8) Aðildarríkin ættu að ákveða viðurlög sem gilda um brot gegn þessari reglugerð. Viðurlögin ættu að vera skilvirk, í réttu hlutfalli við brotið og hafa varnaðaráhrif.
9) Reglugerð þessi ætti að öðlast gildi án tafar til þess að tryggt sé að þær aðgerðir, sem þar er kveðið á um, skili árangri.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr. Í reglugerð þessari er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir:
a) „krafa“: hvers kyns krafa, hvort sem henni er haldið fram í dómsmáli eða ekki, sem er gerð fyrir, eftir eða á þeim degi þegar reglugerð þessi öðlast gildi og er samkvæmt eða tengist samningi eða viðskiptum og felur einkum í sér:
i. kröfu um efndir skuldbindinga sem leiðir af eða tengjast samningi eða viðskiptum,
ii. kröfu um framlengingu eða greiðslu skuldabréfs, fjárhagslegrar tryggingar eða skaðleysisbóta í hvaða mynd sem er,
iii. bótakröfu í tengslum við samning eða viðskipti, iv. gagnkröfu,
v. kröfu um viðurkenningu eða fullnustu, m.a. með exequatur, dóms, úrskurðar gerðardóms eða jafngildrar ákvörðunar, óháð því hvar hann eða hún er kveðin upp eða tekin,
b) „samningur eða viðskipti“: hvers kyns viðskipti, óháð því hvaða lög gilda um þau, hvort sem um er að ræða einn samning eða fleiri eða ámóta skuldbindingar sem sömu eða mismunandi aðilar ganga frá sín á milli; í þessu sambandi felst í hugtakinu „samningur“ skuldabréf, ábyrgð eða skaðleysistrygging, einkum fjárhagsleg trygging eða fjárhagsleg skaðleysistrygging, og lán, hvort sem þau eru lagalega óháð eður ei, einnig tengd ákvæði sem verða til vegna viðskiptanna eða í tengslum við þau,
c) „lögbær stjórnvöld“: lögbær stjórnvöld aðildarríkjanna eins og þau eru tilgreind á vefsetrunum sem talin eru upp í III. viðauka,
d) „efnahagslegur auður“: eignir af hvers kyns toga, hvort heldur efnislegar eða óefnislegar, lausafé eða fasteignir, sem eru ekki fjármunir, en unnt er að nota til að afla sér fjármuna, vöru eða þjónustu,
e) „frysting efnahagslegs auðs“: að koma í veg fyrir hvers konar nýtingu efnahagslegs auðs í því skyni að afla fjármuna, vara eða þjónustu, þ.m.t., en þó ekki eingöngu, með sölu, leigu eða veðsetningu hans,
f) „frysting fjármuna“: að koma í veg fyrir hvers konar flutning, yfirfærslu, breytingu eða notkun fjármuna, aðgang að þeim eða viðskipti með þá, á einhvern þann hátt sem myndi leiða til breytinga á umfangi þeirra, fjárhæð, staðsetningu, eignarrétti, eignarhaldi, eðli eða áfangastað eða annarra breytinga sem gera notkun fjármuna mögulega, þ.m.t. stýring eignasafns,
g) „fjármunir“: hvers konar fjáreignir og ágóði, þ.m.t. en þó ekki eingöngu:
i. reiðufé, ávísanir, peningakröfur, víxlar, póstávísanir og aðrir greiðslugerningar,
ii. inneignir hjá fjármálastofnunum eða öðrum rekstrareiningum, inneignir á reikningum, skuldir og fjárskuldbindingar,
iii. verðbréf eða skuldaskjöl, sem viðskipti eru með á almennum markaði og utan hans, þ.m.t. hlutabréf og eignarhlutir, skírteini fyrir verðbréfum, skuldabréf, skuldaviðurkenningar, ábyrgðir, óveðtryggð skuldabréf og afleiðusamningar,
iv. vextir, arðgreiðslur eða aðrar tekjur eða verðmæti sem safnast upp vegna eigna eða myndast af eignum,
v. lánsviðskipti, réttur til skuldajöfnunar, tryggingar, fullnustuábyrgðir eða aðrar fjárskuldbindingar, vi. bankaábyrgðir, farmbréf, sölureikningar og
vii. skjöl sem færa sönnur á hlutdeild í fjármunum eða fjármagni,
h) „tækniaðstoð“: tæknilegur stuðningur í tengslum við viðgerðir, þróun, framleiðslu, samsetningu, prófun, viðhald eða hvers konar aðra tæknilega þjónustu og getur verið í formi kennslu, ráðgjafar, þjálfunar, yfirfærslu verkþekkingar eða -kunnáttu eða ráðgjafarþjónustu, þ.m.t. munnleg aðstoð,
i) „miðlunarþjónusta“:
i. að semja um eða skipuleggja viðskipti vegna kaupa, sölu eða afhendingar vara og tækni eða fjármála- og tækniþjónustu, frá þriðja landi til annars þriðja lands eða
ii. að selja eða kaupa vörur og tækni eða fjármála- eða tækniþjónustu sem eru/er staðsett í þriðja landi og færa á til annars þriðja lands,
j) „yfirráðasvæði Sambandsins“: þau yfirráðasvæði aðildarríkjanna sem sáttmálinn tekur til, samkvæmt þeim skilyrðum sem mælt er fyrir um í sáttmálanum, þ.m.t. loftrými þeirra.
2. gr.
1. Lagt er bann við því:
a) að veita, með beinum eða óbeinum hætti, tækniaðstoð, miðlunarþjónustu og aðra þjónustu, sem tengist vörum og tækni á sameiginlegum hergagnalista ESB („sameiginlega hergagnalistanum“) og útvegun, framleiðslu, viðhaldi og notkun á vörum og tækni, sem eru á sameiginlega hergagnalistanum, til handa einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Venesúela eða til notkunar þar í landi,
b) að veita, með beinum eða óbeinum hætti, fjármagn eða fjárhagsaðstoð, sem tengist vörum og tækni sem eru á sameiginlega hergagnalistanum, þ.m.t., einkum og sér í lagi, styrki, lán og útflutningsgreiðsluvátryggingar, sem og tryggingar og endurtryggingar, vegna sölu, afhendingar, tilfærslu eða útflutnings slíkra hluta, eða sem tengist því að veita tengda tækniaðstoð, miðlunarþjónustu og aðra þjónustu, með beinum eða óbeinum hætti, til aðila, rekstrareiningar eða stofnunar í Venesúela eða til notkunar þar í landi.
2. Bannið í 1. mgr. gildir ekki um efndir samninga sem gerðir voru fyrir 13. nóvember 2017 eða fylgisamninga sem eru nauðsynlegir til að efna slíka samninga, að því tilskildu að þeir séu í samræmi við sameiginlega afstöðu ráðsins 2008/944/SSUÖ (4), einkum viðmiðanir 2. gr. hennar, og að einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir sem leitast við að framkvæma viðkomandi samning hafi tilkynnt lögbæru stjórnvaldi þess aðildarríkis, þar sem þeir eða þær hafa staðfestu, um samninginn innan 5 virkra daga frá gildistöku þessarar reglugerðar.
3. gr.
Lagt er bann við því:
a) að selja, afhenda, tilfæra eða flytja út, með beinum eða óbeinum hætti, búnað, sem nota má til bælingar innanlands og um getur í I. viðauka, hvort sem hann er upprunninn í Sambandinu eða ekki, til einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar í Venesúela eða til notkunar þar í landi,
b) að veita tækniaðstoð og miðlunarþjónustu og aðra þjónustu, sem tengist þeim búnaði er um getur í alið, beint eða óbeint einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Venesúela eða til notkunar þar í landi,
c) að veita fjármagn eða fjárhagsaðstoð, þ.m.t., einkum og sér í lagi, styrki, lán og útflutningsgreiðsluvátryggingar, auk trygginga og endurtrygginga, sem tengist þeim búnaði er um getur í a-lið, beint eða óbeint einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Venesúela eða til notkunar þar í landi.
4. gr.
1. Þrátt fyrir 2. og 3. gr. geta lögbær stjórnvöld í aðildarríkjunum, sem eru talin upp í III. viðauka, heimilað, með þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi:
a) að veitt sé fjármagn og fjárhagsaðstoð og tækniaðstoð vegna:
i. óbanvæns herbúnaðar sem einungis er ætlaður í mannúðar- eða verndarskyni eða vegna áætlana um stofnanauppbyggingu á vegum Sameinuðu þjóðanna og Sambandsins eða aðildarríkja þess eða svæðisbundinna stofnana og undirsvæðisstofnana,
ii. hergagna sem eru ætluð til notkunar í hættustjórnunaraðgerðum SÞ og Sambandsins eða svæðisbundinna stofnana og undirsvæðisstofnana,
b) sölu, afhendingu, tilfærslu eða útflutning búnaðar sem nota má til bælingar innanlands og tengda veitingu fjármagns og fjárhagsaðstoðar og tækniaðstoðar, sem eru einungis ætluð í mannúðar- eða verndarskyni eða vegna áætlana um stofnanauppbyggingu á vegum SÞ eða Sambandsins eða í hættustjórnunaraðgerðum SÞ og Sambandsins eða svæðisbundinna stofnana og undirsvæðisstofnana,
c) sölu, afhendingu, tilfærslu eða útflutning jarðsprengjuhreinsunarbúnaðar og hergagna til notkunar við jarðsprengjuhreinsunaraðgerðir og tengda fjármögnun og fjárhagsaðstoð og tækniaðstoð.
2. Aðeins má veita þær heimildir, sem um getur í 1. mgr., áður en ráðist er í þá aðgerð sem óskað er heimildar fyrir.
5. gr.
Ákvæði 2. og 3. gr. gilda ekki um hlífðarfatnað, þ.m.t. skotheld vesti og herhjálma, sem starfsfólk SÞ, starfsfólk Sambandsins eða aðildarríkja þess, fulltrúar fjölmiðla og starfsmenn hjálpar- og þróunarstofnana og tengt starfsfólk hefur flutt tímabundið út til Venesúela eingöngu til eigin nota.
6. gr.
1. Lagt er bann við sölu, afhendingu, tilfærslu eða útflutningi, með beinum eða óbeinum hætti, á búnaði, tækni eða hugbúnaði, sem tilgreindur er í II. viðauka, hvort sem framangreint á uppruna í Sambandinu eða ekki, til aðila, rekstrareiningar eða stofnunar í Venesúela eða til notkunar þar í landi nema lögbært stjórnvald viðkomandi aðildarríkis, eins og það er tilgreint á vefsetrunum sem talin eru upp í III. viðauka, hafi veitt fyrirframheimild.
2. Lögbær stjórnvöld aðildarríkjanna, eins og þau eru tilgreind á vefsetrunum, sem talin eru upp í III. viðauka, skulu ekki veita heimild skv. 1. mgr. ef þau hafa gilda ástæðu til að ætla að ríkisstjórn Venesúela, opinberar stofnanir, fyrirtæki eða skrifstofur eða aðilar eða rekstrareiningar, sem koma fram fyrir þeirra hönd eða starfa eftir fyrirmælum þeirra, noti búnaðinn, tæknina eða hugbúnaðinn, sem um ræðir, til bælingar innanlands.
3. Í II. viðauka skal m.a. vera búnaður, tækni eða hugbúnaður sem er fyrst og fremst ætlaður til vöktunar eða hlerunar á samskiptum á Netinu eða í síma.
4. Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er samkvæmt þessari grein innan fjögurra vikna frá því að hún er veitt.
7. gr.
1. Hafi lögbært stjórnvald viðkomandi aðildarríkis, eins og það er tilgreint á vefsetrunum, sem talin eru upp í III. viðauka, ekki veitt fyrirframheimild skv. 2. mgr. 6. gr. skal lagt bann við því:
a) að veita, með beinum eða óbeinum hætti, tækniaðstoð eða miðlunarþjónustu, sem tengist búnaði, tækni og hugbúnaði, sem tilgreind eru í II. viðauka, eða í tengslum við það að setja upp, útvega, framleiða, viðhalda og nota búnað og tækni, sem eru tilgreind í II. viðauka, eða útvega, setja upp, starfrækja eða uppfæra hvers kyns hugbúnað, sem er tilgreindur í II. viðauka, til handa aðila, rekstrareiningu eða stofnun í Venesúela eða til notkunar þar í landi,
b) að veita, með beinum eða óbeinum hætti, fjármagn eða fjárhagsaðstoð, sem tengist búnaði, tækni og hugbúnaði, sem er tilgreindur í II. viðauka, til aðila, rekstrareiningar eða stofnunar í Venesúela eða til notkunar þar í landi,
c) að veita hvers kyns þjónustu vegna fjarskipta- eða netvöktunar eða hlerunar, beint eða óbeint í þágu ríkisstjórnar Venesúela, opinberra stofnana, fyrirtækja og skrifstofa eða aðila eða rekstrareiningar sem kemur fram fyrir hönd eða starfar eftir fyrirmælum þeirra.
2. Að því er varðar c-lið 1. mgr. merkir „þjónusta vegna fjarskipta- eða netvöktunar eða hlerunar“ þjónusta sem einkum felst í notkun búnaðar, tækni eða hugbúnaðar, eins og tilgreint er í II. viðauka, og veitir aðgang að eða afhendir fjarskiptaboð til eða frá viðfangi og gögn í tengslum við símtöl í því skyni að draga fram, afkóða, hljóðrita, vinna úr, greina eða geyma efnið, eða hvers kyns önnur starfsemi því tengd.
8. gr.
1. Frysta skal alla fjármuni og efnahagslegan auð sem tilheyra, eru í eigu, í vörslu eða undir stjórn einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar sem er á skrá í IV. og V. viðauka.
2. Engir fjármunir eða efnahagslegur auður skal gerður aðgengilegur þeim einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru á skrá í IV. og V. viðauka, með beinum eða óbeinum hætti, eða koma þeim til góða.
3. Í IV. viðauka skal tilgreina:
a) einstaklinga eða lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir sem bera ábyrgð á alvarlegum mannréttindabrotum eða bælingu borgaralegs samfélags og lýðræðislegrar stjórnaraðstöðu í Venesúela,
b) einstaklinga eða lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir sem með aðgerðum sínum, stefnum eða starfsemi grafa með öðrum hætti undan lýðræði eða réttarríkinu í Venesúela.
4. Í V. viðauka skal tilgreina einstaklinga eða lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir sem tengjast aðilunum og rekstrareiningunum sem um getur í 3. mgr.
5. Í IV. og V. viðauka skal tilgreina ástæður þess að viðkomandi aðilar, rekstrareiningar og stofnanir eru færð á skrá.
6. Í IV. og V. viðauka skulu einnig koma fram nauðsynlegar upplýsingar, ef þær liggja fyrir, til að bera kennsl á viðkomandi einstaklinga eða lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir. Að því er einstaklinga varðar geta þessar upplýsingar verið nöfn þeirra, m.a. tökuheiti, fæðingardagur, -ár og -staður, ríkisfang, númer vegabréfs og kennivottorðs, kyn, heimilisfang, ef það er þekkt, og hlutverk eða starf. Að því er varðar lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir geta þessar upplýsingar verið m.a. nöfn, skráningarstaður og -dagsetning, skráningarnúmer og starfsstöð.
9. gr.
1. Þrátt fyrir ákvæði 8. gr. geta lögbær stjórnvöld aðildarríkjanna, eins og þau eru tilgreind á vefsetrunum sem talin eru upp í III. viðauka, heimilað að tilteknir frystir fjármunir eða efnahagslegur auður verði affrystur eða að tilteknir fjármunir eða efnahagslegur auður verði gerður aðgengilegur samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa gengið úr skugga um að fjármunirnir eða hinn efnahagslegi auður sé:
a) nauðsynlegur til að uppfylla grunnþarfir þeirra einstaklinga og lögaðila sem eru á skrá í IV. eða V. viðauka og aðstandenda á framfæri einstaklinganna, þ.m.t. greiðslur vegna matarkaupa, leigu eða veðlána, lyfja og læknismeðferðar, skattheimtu, tryggingariðgjalda og opinberra þjónustugjalda,
b) einungis ætlaður til að greiða hæfilega sérfræðiþóknun eða til endurgreiðslu kostnaðar vegna lögfræðiþjónustu,
c) eingöngu ætlaður til að greiða þóknanir eða þjónustugjöld fyrir venjubundna vörslu eða umsýslu frystra fjármuna eða efnahagslegs auðs,
d) nauðsynlegur vegna óvenjulegra útgjalda, að því tilskildu að viðeigandi lögbært stjórnvald hafi kunngjört lögbærum stjórnvöldum hinna aðildarríkjanna og framkvæmdastjórninni forsendurnar fyrir því að það telji að veita ætti sérstaka heimild, a.m.k. tveimur vikum áður en heimildin er veitt, eða
e) til þess að greiða inn á eða út af reikningi sendi- eða ræðiskrifstofu eða alþjóðastofnunar, sem nýtur friðhelgi að þjóðarétti, að því leyti sem slíkar greiðslur eru ætlaðar til nota í opinberum tilgangi af hálfu viðkomandi sendi- eða ræðiskrifstofu eða alþjóðastofnunar.
2. Hlutaðeigandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er skv. 1. mgr.
10. gr.
1. Þrátt fyrir ákvæði 8. gr. geta lögbær stjórnvöld í aðildarríkjunum, eins og þau eru tilgreind á vefsetrunum sem talin eru upp í III. viðauka, heimilað að tilteknir fjármunir eða efnahagslegur auður verði affrystur, að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:
a) að fjármunirnir eða hinn efnahagslegi auður sé andlag ákvörðunar gerðardóms, sem fyrir liggur fyrir þann dag þegar viðkomandi einstaklingur, lögaðili, rekstrareining eða stofnun, er um getur í 8. gr., var færð á skrá í IV. eða V. viðauka, eða andlag ákvörðunar dómstóls eða stjórnvalds innan Sambandsins eða ákvörðunar dómstóls sem er aðfararhæf í viðkomandi aðildarríki fyrir, eftir eða á þeim degi,
b) að fjármunirnir eða hinn efnahagslegi auður verði einungis notaður til að uppfylla kröfur, sem fyrrnefnd ákvörðun tryggir eða sem viðurkennt er að séu gildar samkvæmt henni, innan þeirra marka sem gildandi lög og reglur um réttindi þeirra aðila, sem eiga slíkar kröfur, kveða á um,
c) að ákvörðunin sé ekki í þágu einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar sem er á skrá í IV. eða V. viðauka og
d) að viðurkenning ákvörðunarinnar stríði ekki gegn allsherjarreglu í hlutaðeigandi aðildarríki.
2. Hlutaðeigandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er skv. 1. mgr.
11. gr.
1. Þrátt fyrir 8. gr. og að því tilskildu að greiðsla einstaklings eða lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar, sem er færð á skrá í IV. eða V. viðauka, eigi að fara fram samkvæmt samningi eða samkomulagi, sem viðkomandi einstaklingur, lögaðili, rekstrareining eða stofnun gerðu, eða samkvæmt skuldbindingu, sem viðkomandi bar að sinna, fyrir þann dag er einstaklingurinn, lögaðilinn, rekstrareiningin eða stofnunin hafði verið færð á skrá í IV. eða V. viðauka, geta lögbær stjórnvöld í aðildarríkjunum heimilað, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, affrystingu tiltekinna frystra fjármuna eða efnahagslegs auðs, að því tilskildu að viðkomandi lögbært stjórnvald hafi komist að raun um:
a) að fjármunirnir eða hinn efnahagslegi auður skuli notaður sem greiðsla af hálfu einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar sem er á skrá í IV. eða V. viðauka,
b) að greiðslan sé ekki brot á 2. mgr. 8. gr.
2. Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er skv. 1. mgr. innan fjögurra vikna frá því að hún er veitt.
3. Ákvæði 2. mgr. 8. gr. koma ekki í veg fyrir að fjármála- eða lánastofnanir, sem taka við fjármunum sem þriðju aðilar yfirfæra inn á reikninga einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar sem er á skrá, færi þá til tekna á frystum reikningum, að því tilskildu að það viðbótarfé sem þannig er fært á slíka reikninga sé einnig fryst. Hlutaðeigandi fjármála- eða lánastofnun skal tilkynna viðkomandi lögbæru stjórnvaldi um slík viðskipti án tafar.
4. Svo fremi að slíkir vextir, aðrar tekjur og greiðslur, séu fryst í samræmi við 8. gr. gildir 2. mgr. 8. gr. ekki um viðbót við frysta reikninga í formi:
a) vaxta eða annarra tekna af fyrrnefndum reikningum,
b) greiðslna, sem inna ber af hendi samkvæmt samningum, samkomulagi eða skuldbindingum sem gengið var frá eða urðu til fyrir þann dag sem viðkomandi einstaklingur, lögaðili, rekstrareining eða stofnun, sem um getur í 8. gr., var færð á skrá í IV. eða V. viðauka eða
c) greiðslna sem inna ber af hendi samkvæmt ákvörðunum dóms, stjórnvalds eða gerðardóms sem teknar eru í aðildarríki eða eru aðfararhæfar í viðkomandi aðildarríki.
12. gr.
1. Einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar og stofnanir skulu, með fyrirvara um gildandi reglur um skýrslugjöf, trúnaðarkvaðir og þagnarskyldu:
a) beina, án tafar, öllum upplýsingum, sem myndu greiða fyrir því að unnt sé að fara að ákvæðum reglugerðar þessarar, t.d. upplýsingum um reikninga og fjárhæðir sem eru fryst skv. 8. gr., til viðkomandi lögbærs stjórnvalds í því aðildarríki þar sem þeir eða þær hafa heimilisfesti eða eru staðsettir eða staðsettar, og senda framkvæmdastjórninni þessar upplýsingar milliliðalaust eða fyrir atbeina aðildarríkisins og
b) vinna með lögbæra stjórnvaldinu að því að sannreyna þær upplýsingar sem um getur í a-lið.
2. Allar viðbótarupplýsingar, sem framkvæmdastjórnin veitir viðtöku beint, skulu gerðar aðgengilegar aðildarríkjunum.
3. Upplýsingar, sem eru látnar í té eða er veitt viðtaka í samræmi við þessa grein, skal eingöngu nota í þeim tilgangi sem leiddi til þess að þær voru veittar eða þeim var veitt viðtaka.
13. gr.
1. Ef fjármunir eða efnahagslegur auður er frystur eða ef synjað er um aðgang að fjármunum eða efnahagslegum auði, í góðri trú, á þeirri forsendu að slík aðgerð sé í samræmi við reglugerð þessa, bera þeir einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir, sem annast framkvæmd slíkrar aðgerðar, eða hlutaðeigandi stjórnendur eða starfsmenn ekki ábyrgð af neinu tagi nema sannað þyki að fjármunirnir og hinn efnahagslegi auður hafi verið frystir eða synjað hafi verið um aðgang að þeim af gáleysi.
2. Aðgerðir einstaklinga, lögaðila, rekstrareininga eða stofnana skapar þeim ekki ábyrgð af neinu tagi ef þeir eða þær vissu ekki, og höfðu enga réttmæta ástæðu til að ætla, að aðgerðir þeirra myndu fara í bága við þær aðgerðir sem settar eru fram í þessari reglugerð.
14. gr.
Lagt er bann við því að taka þátt, vitandi vits og af ásetningi, í starfsemi sem miðar að því, eða hefur þau áhrif, að aðgerðirnar, sem mælt er fyrir um í þessari reglugerð, séu sniðgengnar.
15. gr.
1. Óheimilt er að efna kröfur sem tengjast samningi eða viðskiptum þegar aðgerðir, sem gripið er til samkvæmt þessari reglugerð, hafa áhrif á framkvæmd þeirra, með beinum eða óbeinum hætti, í heild eða að hluta, þ.m.t. kröfur um skaðleysisbætur eða aðrar ámóta kröfur, t.d. bótakröfur eða kröfur samkvæmt ábyrgðarloforði, einkum framlengingar- eða greiðslukröfur vegna skuldabréfa, ábyrgðar eða skaðleysisbóta og þá sérstaklega fjárhagslegrar ábyrgðar eða fjárhagslegra skaðleysisbóta, í hvaða mynd sem er, ef slíkar kröfur eru settar fram af:
a) tilgreindum einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru á skrá í IV. og V. viðauka,
b) einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem starfar gegnum eða fyrir hönd einhvers þeirra aðila, rekstrareininga eða stofnana er um getur í a-lið.
2. Þegar mál er til meðferðar vegna fullnægingar kröfu skal sönnunarbyrði vegna þeirrar fullyrðingar að eigi sé bannað skv. 1. mgr. að efna kröfuna hvíla á þeim einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem leitar eftir því að kröfunni verði fullnægt.
3. Ákvæði þessarar greinar eru með fyrirvara um rétt þeirra einstaklinga eða lögaðila, rekstrareininga og stofnana, er um getur í 1. mgr., til að skjóta málum til dómstóla sem skeri úr um lögmæti þess að samningsbundnar skyldur séu ekki uppfylltar í samræmi við reglugerð þessa.
16. gr.
1. Framkvæmdastjórnin og aðildarríki skulu upplýsa hvert annað um þær aðgerðir sem gripið er til samkvæmt reglugerð þessari og veita hvert öðru aðrar upplýsingar sem máli skipta og þau búa yfir í tengslum við reglugerð þessa, einkum upplýsingar um:
a) frysta fjármuni skv. 8. gr. og heimildir sem veittar eru skv. 9.-11. gr.,
b) brot á ákvæðum og vandkvæði samfara framkvæmd, ásamt upplýsingum um dóma innlendra dómstóla.
2. Aðildarríkin skulu tafarlaust upplýsa hvert annað og framkvæmdastjórnina um aðrar viðeigandi upplýsingar sem þau búa yfir og gætu haft áhrif á skilvirka framkvæmd reglugerðar þessarar.
17. gr.
1. Ákveði ráðið að þær aðgerðir, sem um getur í 8. gr., skuli varða einstakling, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun skal það gera viðeigandi breytingar á IV. eða V. viðauka.
2. Ráðið skal tilkynna ákvörðun sína, m.a. ástæður þess að viðkomandi er færður á skrá, þeim einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun er um getur í 1. mgr., annaðhvort milliliðalaust, ef heimilisfang viðkomandi er þekkt, eða með útgáfu tilkynningar, þar sem fyrrnefndum einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun býðst að leggja fram athugasemdir sínar.
3. Ef athugasemdir eru gerðar eða traust, ný gögn lögð fram skal ráðið endurskoða ákvörðun sína og upplýsa viðkomandi einstakling, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun um niðurstöðuna.
4. Endurskoða ber skrána í IV. og V. viðauka með reglulegu millibili og a.m.k. á 12 mánaða fresti.
5. Framkvæmdastjórnin hefur umboð til að gera breytingar á III. viðauka á grundvelli upplýsinga sem aðildarríkin láta í té.
18. gr.
1. Aðildarríkin skulu setja reglur um viðurlög við brotum gegn ákvæðum reglugerðar þessarar og gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að þeim sé beitt. Viðurlögin skulu vera skilvirk, í réttu hlutfalli við brotið og hafa varnaðaráhrif.
2. Aðildarríkin skulu tilkynna framkvæmdastjórninni um þær reglur, sem um getur í 1. mgr., strax eftir að reglugerð þessi öðlast gildi og tilkynna henni um allar breytingar sem kunna að verða gerðar síðar.
19. gr.
1. Aðildarríkin skulu tilnefna þau lögbæru stjórnvöld er um getur í reglugerð þessari og tilgreina þau á vefsetrunum sem talin eru upp í III. viðauka. Aðildarríkin skulu tilkynna framkvæmdastjórninni um hvers kyns breytingar á vefföngum vefsetra sinna sem talin eru upp í III. viðauka.
2. Aðildarríkin skulu tilkynna framkvæmdastjórninni um hver lögbær stjórnvöld þeirra eru, m.a. um hvernig ná má sambandi við þau, strax eftir að þessi reglugerð öðlast gildi og tilkynna henni um allar breytingar sem kunna að verða gerðar síðar.
3. Sé gerð krafa, samkvæmt reglugerð þessari, um að senda framkvæmdastjórninni tilkynningar eða upplýsingar eða hafa samband við hana á annan hátt skulu heimilisfang og aðrar samskiptaupplýsingar, sem nota skal til slíkra samskipta, vera þau sem gefin eru upp í III. viðauka.
20. gr.
Reglugerð þessi gildir:
a) á yfirráðasvæði Sambandsins, þ.m.t. í loftrými þess,
b) um borð í loftförum eða skipum sem lögsaga aðildarríkis nær til,
c) um sérhvern aðila innan eða utan yfirráðasvæðis Sambandsins sem er ríkisborgari í aðildarríki,
d) um sérhvern lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun, innan eða utan yfirráðasvæðis Sambandsins, sem er skráð eða löglega stofnuð samkvæmt lögum aðildarríkis,
e) um sérhvern lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun að því er varðar viðskipti sem fara fram að öllu leyti eða að hluta innan Sambandsins.
21. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi daginn sem hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 13. nóvember 2017.
Fyrir hönd ráðsins,
F. MOGHERINI forseti.
_______________________________
(1) Stjtíð. ESB L 295, 14.11.1017, bls. 60.
(2) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 45/2001 frá 18. desember 2000 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga, sem stofnanir og aðilar Bandalagsins hafa unnið, og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga )(Stjtíð. EB L 8, 12.1.2001,bls. 1.
(3) Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 95/46/EB frá 24. október 1995 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga (Stjtíð. EB L 281, 23.11.1995, bls. 31).
(4) Sameiginleg afstaða ráðsins 2008/944/SSUÖ frá 8. desember 2008 um skilgreiningu á sameiginlegum reglum um eftirlit með útflutningi á hernaðarlegri tækni og búnaði (Stjtíð. ESB L 335, 13.12.2008, bls. 99).
FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2018/88 frá 22. janúar 2018 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela
IV. viðauka við reglugerð (EB) nr. 2017/2063 er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við reglugerð þessa (Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg/2018/88/oj.
Síðari breytingar og uppfærslur viðaukans öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á vef Stjórnartíðinda ESB (http://eur-lex.europa.eu), sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2018/901 frá 25. júní 2018 um breytingu á ákvörðun 2017/2074/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela
Viðauka við ákvörðun 2017/2074/SSUÖ skal breytt í samræmi við viðaukann við reglugerð þessa. (Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB:
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2018/1656 frá 6. nóvember 2018 um breytingu á ákvörðun 2017/2074/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum 29. gr.,
með hliðsjón af tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum, og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 13. nóvember 2017 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 (1) um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
2) Framlengja ber þvingunaraðgerðirnar til 14. nóvember 2019 á grundvelli endurskoðunar ákvörðunar (SSUÖ) 2017/2074.
3) Breyta ætti greinargerð um ástæður fyrir einn aðila sem skráður er í I. viðauka við ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074.
4) Því ætti að breyta ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 til samræmis við það.
SAMÞYKKT ÁKVÖRÐUN ÞESSA:
1. gr.
Ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 er breytt sem hér segir:
1) Í stað 13. gr. kemur eftirfarandi:
„13. gr.
Ákvörðun þessi gildir til 14. nóvember 2019.
Hún skal vera til stöðugrar endurskoðunar. Hana skal framlengja eða henni breyta, eftir því sem við á, telji ráðið að markmiðum hennar hafi ekki verið náð.“
2) Ákvæðum I. viðauka er breytt í samræmi við viðaukann við þessa ákvörðun.
2. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Gjört í Brussel 6. nóvember 2018.
Fyrir hönd ráðsins,
H. LÖGER forseti.
___________________
(1) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/2074 frá 13. nóvember 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela (Stjtíð. ESB L 295, 14.11.2017, bls. 60).
VIÐAUKI
Í stað 7. færslu í I. viðauka við ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 kemur eftirfarandi:
Nafn | Upplýsingar til auðkenningar | Ástæður | Dagsetning færslu á skrá | |
„7. | Diosdado Cabello Rondón | Fæðingardagur og -ár: 15. apríl 1963 | Forseti stjórnlagaþingsins og fyrsti varaforseti Sameinaða Sósíalistaflokksins í Venesúela (Partido Socialista Unido de Venezuela, PSUV). Hefur tekið þátt í að grafa undan lýðræðinu og réttarríkinu í Venesúela, m.a. með því að nota fjölmiðla til að ráðast opinberlega gegn og ógna pólitískum andstæðingum, öðrum fjölmiðlum og borgaralegu samfélagi. | 22.1.2018“ |
FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2018/899 frá 25. júní 2018 um framkvæmd reglugerðar rásins 2017/2063/ESB um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela
Viðauka við ákvörðun 2017/2063/ESB skal breytt í samræmi við viðaukann við reglugerð þessa. (Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB:
FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2018/1653 frá 6. nóvember 2018 um framkvæmd reglugerðar rásins 2017/2063/ESB um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela
Viðauka við ákvörðun 2017/2063/ESB skal breytt í samræmi við viðaukann við reglugerð þessa. (Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg_impl/2018/899/oj.
Fylgiskjal 1.5.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2019/1171
frá 8. júlí 2019
um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
Viðauka I við ákvörðun 2017/2074/SSUÖ skal breytt í samræmi við viðaukann við ákvörðun þessa. (Efnisútdráttur.)
VIÐAUKI
[Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/dec/2019/1171/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]
Fylgiskjal 1.6.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2019/1596
frá 26. september 2019
um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
Viðauka I við ákvörðun 2017/2074/SSUÖ skal breytt í samræmi við viðaukann við ákvörðun þessa. (Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
[Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/dec/2019/1596/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]
Fylgiskjal 1.7.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2019/1893
frá 11. nóvember 2019
um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum 29. gr.,
með hliðsjón af tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 13. nóvember 2017 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074(1) um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
2) Ráðið lagði áherslu á að þvingunaraðgerðir kæmu í áföngum, væru markvissar, sveigjanlegar og afturkallanlegar, hefðu ekki áhrif á almenning og miðuðu að því að ýta undir trúverðugt og marktækt ferli sem getur leitt til samninga um friðsamlega lausn.
3) Í ljósi þess að ástandið í Venesúela fer stöðugt versnandi samþykkti ráðið 22. janúar 2018 ákvörðun (SSUÖ) 2018/90(2) þar sem tilgreindir voru sjö aðilar á skrána yfir einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir í I. viðauka við ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074.
4) Hinn 28. maí 2018 samþykkti ráðið ályktanir þar sem fram kom að snemmbúnar forsetakosningar í Venesúela ásamt svæðiskosningum sem haldnar voru 20. maí 2018 hefðu hvorki verið frjálsar né sanngjarnar. Sambandið kallaði eftir því að haldnar yrðu nýjar forsetakosningar og lýsti því yfir að það myndi bregðast skjótt við og grípa til frekari markvissra og afturkallanlegra þvingunarráðstafana.
5) Hinn 25. júní 2018 fylgdi ráðið eftir ályktunum sínum frá 28. maí 2018 með því að samþykkja ákvörðun (SSUÖ) 2018/901(3) þar sem tilgreindir voru ellefu aðilar.
6) Hinn 25. október 2018 gaf æðsti fulltrúi Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum („æðsti fulltrúinn“) út yfirlýsingu fyrir hönd Sambandsins þar sem fram kom að Sambandið væri enn sannfært um að einungis væri sá kostur fyrir hendi að finna lýðræðislega, pólitíska og friðsama lausn á núverandi krísu og undirstrikaði að Sambandið hefði einsett sér að nota öll stjórntæki sín til að stuðla að því að slík lausn næðist.
7) Hinn 6. nóvember 2018 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2018/1656(4) þar sem þær þvingunaraðgerðir sem í gildi eru vegna ástandsins í Venesúela voru framlengdar í ljósi áframhaldandi pólitískrar, efnahagslegrar og félagslegrar krísu í landinu sem fer versnandi.
8) Í janúar, febrúar, mars og apríl 2019 gaf æðsti fulltrúinn út yfirlýsingar fyrir hönd Sambandsins um ástandið í Venesúela þar sem undirstrikað var að Sambandið væri áfram reiðubúið til að gera allt sem gera þyrfti til að takast mætti að endurreisa lýðræði og réttarríkið, til að grípa til frekari aðgerða og bregðast með viðeigandi ráðstöfunum við ákvörðunum og aðgerðum sem grafa enn frekar undan stofnunum og meginreglum lýðræðisins, réttarríkinu og virðingu fyrir mannréttindum.
9) Hinn 8. júlí 2019 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2019/1171(1) þar sem greinargerð um ástæður skráningar þriggja skráðra aðila var uppfærð.
10) Hinn 16. júlí 2019 gaf æðsti fulltrúinn út yfirlýsingu fyrir hönd Sambandsins þar sem fram kom að skýrsla Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna staðfesti með skýrum og ítarlegum hætti hversu útbreidd og alvarleg mannréttindabrot væru, að grafið væri undan réttarríkinu og að lýðræðislegar stofnanir væru að
liðast í sundur í Venesúela. Sambandið lýsti sig einnig reiðubúið til að hefjast handa við að beita markvissum ráðstöfunum gagnvart þeim meðlimum öryggissveitanna sem tekið hafa þátt í pyndingum og öðrum alvarlegum mannréttindabrotum.
11) Hinn 26. september 2019 samþykkti ráðið, til þess að fylgja eftir yfirlýsingunni frá 16. júlí 2019 og í ljósi áframhaldandi alvarlegs ástands í Venesúela, ákvörðun (SSUÖ) 2019/1596(6) þar sem tilgreindir voru sjö aðilar.
12) Í þessu samhengi og í samræmi við 13. gr. ákvörðunar (SSUÖ) 2017/2074 hefur ráðið endurskoðað þær þvingunaraðgerðir sem eru í gildi í ljósi ástandsins í Venesúela.
13) Með hliðsjón af yfirstandandi pólitískri, efnahagslegri og félagslegri krísu og mannúðarkrísu í Venesúela og þrálátum aðgerðum til að grafa undan lýðræði, réttarríkinu og virðingu fyrir mannréttindum ætti að framlengja þær þvingunarráðstafanir sem í gildi eru, þ.m.t. allar tilgreiningar, til 14. nóvember 2020. Þessar
aðgerðir hafa ekki áhrif á almenning og þær má afturkalla ef þróun verður í þá átt að endurreisa lýðræði, réttarríkið og virðingu fyrir mannréttindum í Venesúela.
14) Stakar tilgreiningar, sem settar eru fram í I. viðauka við ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074, voru endurskoðaðar og breyta ætti upplýsingum varðandi átta aðila.
15) Enn fremur ætti að bæta ákvæði við ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 þar sem tilgreint er að ráðið og æðsti fulltrúinn megi vinna persónuupplýsingar til að geta sinnt verkefnum sínum samkvæmt þeirri ákvörðun.
16) Því ætti að breyta ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 til samræmis við það.
SAMÞYKKT ÁKVÖRÐUN ÞESSA:
1. gr.
Ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 er breytt sem hér segir:
1) Eftirfarandi grein bætist við:
„9. gr. a.
1. Ráðið og æðsti fulltrúi Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum („æðsti fulltrúinn“) mega vinna persónuupplýsingar til að geta sinnt verkefnum sínum samkvæmt þessari ákvörðun, nánar tiltekið:
a) að því er varðar ráðið, vegna undirbúnings og breytinga á I. og II. viðauka,z
b) að því er varðar æðsta fulltrúann, vegna undirbúnings breytinga á I. og II. viðauka.
2. Ráðinu og æðsta fulltrúanum er, eftir atvikum, einungis heimilt að vinna viðeigandi upplýsingar sem varða refsiverð brot, framin af skráðum einstaklingum, sakfellingar slíkra einstaklinga í refsimálum eða öryggisráðstafanir sem varða þá að því marki sem slík vinnsla er nauðsynleg vegna undirbúnings I. og II.
viðauka.
3. Að því er varðar þessa ákvörðun eru ráðið og æðsti fulltrúinn tilgreind sem „ábyrgðaraðilar“ í skilningi 8. liðar 3. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1725(*1), til að tryggja að viðkomandi einstaklingar geti neytt réttar síns samkvæmt reglugerð (ESB) 2018/1725.
__________________
(*1) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1725 frá 23. október 2018 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu stofnana, aðila, skrifstofa og sérstofnana Sambandsins á persónuupplýsingum og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 45/2001 og ákvörðunar nr. 1247/2002/EB (Stjtíð. ESB L 295, 21.11.2018, bls. 39)."
2) Ákvæðum I. viðauka er breytt í samræmi við viðaukann við þessa ákvörðun.
2. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Gjört í Brussel 11. nóvember 2019.
Fyrir hönd ráðsins,
F. MOGHERINI
forseti.
_____________________
(1) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/2074 frá 13. nóvember 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela (Stjtíð. ESB L 295, 14.11.2017, bls. 60).
(2) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/90 frá 22. janúar 2018 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela (Stjtíð. ESB L 16 I, 22.1.2018, bls. 14).
(3) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/901 frá 25. júní 2018 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela (Stjtíð. ESB L 160 I, 25.6.2018, bls. 12).
(4) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/1656 frá 6. nóvember 2018 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela (Stjtíð. ESB L 276, 7.11.2018, bls. 10).
(5) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/1171 frá 8. júlí 2019 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela (Stjtíð. ESB L 183, 9.7.2019, bls. 9).
(6) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/1596 frá 26. september 2019 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela (Stjtíð. ESB L 248, 27.9.2019, bls. 74).
Fylgiskjal 1.8.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2020/898
frá 29. júní 2020
um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
Viðauka I við ákvörðun 2017/2074/SSUÖ skal breytt í samræmi við viðaukann við ákvörðun þessa. (Efnisútdráttur.)
VIÐAUKI
[Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/dec/2020/898/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]
Fylgiskjal 1.9.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2020/1700
frá 12. nóvember 2020
um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
I. viðauka við ákvörðun 2017/2074/SSUÖ skal breytt í samræmi við viðaukann við ákvörðun þessa. (Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
[Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/dec/2020/1700/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]
Fylgiskjal 1.10.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2021/276
frá 22. febrúar 2021
um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
I. viðauka við ákvörðun 2017/2074/SSUÖ skal breytt í samræmi við viðaukann við reglugerð þessa. (Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
[Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/dec/2021/276/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]
Fylgiskjal 1.11.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2021/1965
frá 11. nóvember 2021
um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
I. viðauka við ákvörðun 2017/2074/SSUÖ skal breytt í samræmi við viðaukann við reglugerð þessa. (Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
[Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/dec/2021/1965/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]
Fylgiskjal 1.12.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2022/2201
frá 10. nóvember 2022
um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
Ákvörðun 2017/2074/SSUÖ er breytt sem hér segir.
1) Í stað 1. mg. 13 gr. kemur eftirfarandi:
Ákvörðun þessi skal gilda til 14. nóvember 2023.
2) Viðauka I skal breytt í samræmi við viðaukann við ákvörðun þessa. (Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
[Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/dec/2022/2201/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]
Fylgiskjal 2.4.
FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2019/1169
frá 8. júlí 2019
um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
IV. viðauka við reglugerð (ESB) 2017/2063 skal breytt í samræmi við viðaukann við reglugerð þessa. (Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
[Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg_impl/2019/1169/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]
Fylgiskjal 2.5.
FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2019/1586
frá 26. september 2019
um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
IV. viðauka við reglugerð 2017/2063/ESB skal breytt í samræmi við viðaukann við reglugerð þessa.
(Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
[Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg_impl/2019/1586/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]
Fylgiskjal 2.6.
REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2019/1889
frá 11. nóvember 2019
um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2063
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
með hliðsjón af ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/2074 frá 13. nóvember 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi
ástandsins í Venesúela(1),
með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Með reglugerð ráðsins (ESB) 2017/2063(2) koma til framkvæmda ýmsar þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074.
2) Hinn 11. nóvember 2019 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2019/1893(3) sem breytti ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 með því að setja inn grein um vinnslu ráðsins og æðsta fulltrúans á persónuupplýsingum.
3) Vegna framkvæmdar reglugerðar (ESB) 2017/2063 og til að tryggja sem mesta réttarvissu innan Sambandsins ætti að birta nöfn og aðrar viðeigandi upplýsingar um þá einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir sem fjármunir og efnahagslegur auður er frystur hjá samkvæmt þeirri reglugerð. Hvers konar vinnsla persónuupplýsinga verður að vera í samræmi við reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679(4) og (ESB) 2018/1725(5).
4) Því ætti að breyta reglugerð (ESB) 2017/2063 til samræmis við það.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Eftirfarandi grein bætist við í reglugerð (ESB) 2017/2063:
„18. gr. a.
1. Ráðið, framkvæmdastjórnin og æðsti fulltrúi Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum („æðsti fulltrúinn“) mega vinna persónuupplýsingar til að geta sinnt verkefnum sínum samkvæmt þessari reglugerð.
Verkefnin eru:
a) að því er varðar ráðið, að undirbúa og gera breytingar á IV. og V. viðauka,
b) að því er varðar æðsta fulltrúann, að undirbúa breytingar á IV. og V. viðauka.
c) að því er varðar framkvæmdastjórnina:
i. að bæta efni IV. og V. viðauka í rafrænu samsteyptu skrána yfir aðila, hópa og rekstrareiningar sem sæta fjárhagslegum þvingunaraðgerðum Sambandsins og á gagnvirka kortið yfir refsiaðgerðir, sem bæði eru aðgengileg almenningi,
ii. að vinna upplýsingar um áhrif aðgerða sem gripið er til samkvæmt þessari reglugerð, s.s. um verðmæti frystra fjármuna og upplýsingar um heimildir sem lögbær stjórnvöld hafa veitt.
2. Ráðinu, framkvæmdastjórninni og æðsta fulltrúanum er, eftir atvikum, einungis heimilt að vinna viðeigandi upplýsingar sem varða refsiverð brot, framin af skráðum einstaklingum, sakfellingar slíkra einstaklinga í refsimálum eða öryggisráðstafanir sem varða þá að því marki sem slík vinnsla er nauðsynleg vegna
undirbúnings IV. og V. viðauka.
3. Að því er varðar þessa reglugerð eru ráðið, þjónustudeild framkvæmdastjórnarinnar, sem er á skrá í III. viðauka við þessa reglugerð, og æðsti fulltrúinn tilgreind sem „ábyrgðaraðilar“ í skilningi 8. liðar 3. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1725 til að tryggja að viðkomandi einstaklingar geti neytt réttar síns samkvæmt reglugerð (ESB) 2018/1725.
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 11. nóvember 2019.
Fyrir hönd ráðsins,
F. MOGHERINI
forseti.
___________________________
(1) ESB L 295, 14.11.2017, bls. 60.
(2) Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/2063 frá 13. nóvember 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela (Stjtíð. ESB L 295, 14.11.2017, bls. 21).
(3) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/1893 frá 11. nóvember 2019 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela (Stjtíð. ESB L 291, 12.11.2019, bls. 42).
(4) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 frá 27. apríl 2016 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga og niðurfellingu tilskipunar 95/46/EB (almenna persónuverndarreglugerðin) (Stjtíð. ESB L 119, 4.5.2016, bls. 1).
(5) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1725 frá 23. október 2018 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu stofnana, aðila, skrifstofa og sérstofnana Sambandsins á persónuupplýsingum og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 45/2001 og ákvörðunar nr. 1247/2002/EB (Stjtíð. ESB L 295, 21.11.2018, bls. 39).
Fylgiskjal 2.7.
FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2019/1891
frá 11. nóvember 2019
um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
IV. viðauka við reglugerð 2017/2063/ESB skal breytt í samræmi við viðaukann við reglugerð þessa.
(Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
[Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg_impl/2019/1891/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér:
https://eur-lex.europa.eu/homepage.html?locale=en.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]
Fylgiskjal 2.8.
FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2020/897
frá 29. júní 2020
um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
IV. viðauka við reglugerð 2017/2063/ESB skal breytt í samræmi við viðaukann við reglugerð þessa.
(Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
[Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg_impl/2020/897/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: https://eur-lex.europa.eu/homepage.html?locale=en.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér: https://ec.europa.eu/info/business-economyeuro/banking-and-finance/international-relations/restrictive-measures-sanctions_en#list.]
Fylgiskjal 2.9.
FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2020/1696
frá 12. nóvember 2020
um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
IV. viðauka við reglugerð 2017/2063/ESB skal breytt í samræmi við viðaukann við reglugerð þessa.
(Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
[Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg_impl/2020/1696/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér:
https://eur-lex.europa.eu/homepage.html?locale=en.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]
Fylgiskjal 2.10.
FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2021/275
frá 22. febrúar 2021
um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
IV. viðauka við reglugerð 2017/2063/ESB skal breytt í samræmi við viðaukann við reglugerð þessa.
(Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
[Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg_impl/2021/275/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér:
https://eur-lex.europa.eu/homepage.html?locale=en.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]
Fylgiskjal 2.11.
FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2021/1959
frá 11. nóvember 2021
um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
IV. viðauka við reglugerð 2017/2063/ESB skal breytt í samræmi við viðaukann við reglugerð þessa.
(Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
[Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg_impl/2021/1959/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér:
https://eur-lex.europa.eu/homepage.html?locale=en.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]
Fylgiskjal 2.12.
FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2022/2194
frá 10. nóvember 2022
um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063
um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.
IV. viðauka við reglugerð 2017/2063/ESB skal breytt í samræmi við viðaukann við reglugerð þessa.
(Efnisútdráttur).
VIÐAUKI
[Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg_impl/2022/2194/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér:
https://eur-lex.europa.eu/homepage.html?locale=en.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]
Fylgiskjal 2.13.
REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2023/2694
frá 27. nóvember 2023
um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir
í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Sambandið getur beint þvingunaraðgerðum, þ.m.t. frystingu fjármuna og efnahagslegs auðs, gegn tilgreindum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum og stofnunum. Reglugerðir ráðsins koma slíkum aðgerðum til framkvæmda.
2) Hinn 9. desember 2022 samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktun nr. 2664 (2022). Í 1. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) kemur fram að útvegun, vinnsla eða greiðsla fjármuna, annarra fjáreigna eða efnahagslegs auðs eða útvegun vara og þjónustu sem nauðsynleg er til að tryggja að veita megi
tímanlega mannúðaraðstoð eða styðja við aðra starfsemi sem styður við grunnþarfir fólks sé heimil, af hálfu tiltekinna aðila, og brjóti ekki gegn frystingu eigna sem lögð er á af öryggisráðinu eða framkvæmdanefndum þess um þvingunaraðgerðir.
3) Hinn 14. febrúar 2023 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2023/338(1) og reglugerð (ESB) 2023/331(2) sem innleiddi undanþáguna af mannúðarástæðum samkvæmt ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) í regluverk Sambandsins um þvingunarráðstafanir sem kemur til framkvæmda aðgerðum sem öryggisráðið og framkvæmdanefndir þess um þvingunarráðstafanir ákveða. Hinn 31. mars 2023 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2023/726(3) og reglugerð (ESB) 2023/720(4) sem innleiddi undanþáguna af mannúðarástæðum samkvæmt ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) í regluverk Sambandsins um þvingunarráðstafanir sem
kemur til framkvæmda aðgerðum, sem öryggisráðið og framkvæmdanefndir þess um þvingunarráðstafanir ákveða, og í viðbótaraðgerðir sem ráðið ákveður.
4) Til að efla samræmi og samkvæmni milli regluverka Sambandsins um þvingunaraðgerðir og við þau regluverk, sem öryggisráðið eða framkvæmdanefndir þess um þvingunarráðstafanir samþykkja, og til að tryggja að veita megi tímanlega mannúðaraðstoð eða styðja við aðra starfsemi sem styður við grunnþarfir fólks, telur ráðið að taka ætti upp í tiltekin regluverk Sambandsins um þvingunarráðstafanir undanþágu frá frystingu fjármuna tilgreindra einstaklinga og lögaðila og frá takmörkunum á því að gera fjármuni eða efnahagslegan auð aðgengilegan þeim, í þágu aðila sem um getur í ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022), samtaka og fagstofnana, sem Sambandið hefur veitt vottorð um samstarf í mannúðarmálum (e. Humanitarian Partnership Certificate), samtaka og fagstofnana sem hafa vottun eða viðurkenningu frá aðildarríki eða sérstofnana aðildarríkja. Enn fremur telur ráðið að innleiða ætti undanþágufyrirkomulag eða breyta fyrirliggjandi undanþágufyrirkomulagi fyrir þau samtök og þá aðila sem taka þátt í mannúðarstarfi en geta ekki nýtt sér undanþáguna.
5) Hinn 27. nóvember 2023 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2023/2686(5) um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins til að koma inn ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum.
6) Breytingarnar falla undir gildissvið sáttmálans og því er lagasetning á vettvangi Sambandsins nauðsynleg til að hrinda þeim í framkvæmd, einkum til að tryggt sé að þeim sé beitt með samræmdum hætti í öllum aðildarríkjunum.
7) Því ætti að breyta reglugerðum ráðsins (EB) nr. 314/2004(6), (ESB) nr. 1284/2009(7), (ESB) nr. 101/2011(8), (ESB) nr. 401/2013(9), (ESB) 2015/1755(10), (ESB) 2017/2063(11), (ESB) 2019/796(12), (ESB) 2019/1716(13) og (ESB) 2021/1275(14) til samræmis við það.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Eftirfarandi grein er felld inn í reglugerð (ESB) nr. 2017/2063:
„9. gr. a
1. Ákvæði 1. og 2. mgr. 8. gr. gilda ekki um það þegar nauðsynlegir fjármunir eða efnahagslegur auður er gerður aðgengilegur til að tryggja að veita megi tímanlega mannúðaraðstoð eða styðja við aðra starfsemi sem styður við grunnþarfir fólks þegar slík aðstoð og önnur starfsemi er framkvæmd af hálfu:
a) Sameinuðu þjóðanna (SÞ), þ.m.t. áætlana þeirra, sjóða og annarra rekstrareininga og stofnana, sem og sérstofnana þeirra og tengdra stofnana,
b) alþjóðastofnana,
c) stofnana á sviði mannúðarmála sem hafa stöðu áheyrnarfulltrúa á allsherjarþingi SÞ og aðila að þessum mannúðarstofnunum,
d) frjálsra félagasamtaka með tvíhliða eða marghliða fjármögnun sem taka þátt í viðbragðsáætlunum SÞ um mannúðaraðstoð, viðbragðsáætlunum SÞ vegna flóttafólks, öðrum áköllum SÞ eða klösum á sviði mannúðarmála sem samhæfingarskrifstofa aðgerða SÞ í mannúðarmálum samhæfir,
e) samtaka og fagstofnana, sem Sambandið hefur veitt vottorð um samstarf í mannúðarmálum (e. Humanitarian Partnership Certificate) eða sem hafa vottun eða viðurkenningu frá aðildarríki í samræmi við landsbundna málsmeðferð,
f) sérstofnana aðildarríkjanna eða
g) starfsfólks, styrkþega, dótturfélaga eða framkvæmdaraðila þeirra rekstrareininga sem um getur í a- til f-lið á meðan og að því marki sem þeir starfa í þessum stöðum.
2. Með fyrirvara um 1. mgr. og þrátt fyrir 1. og 2. mgr. 8. gr. geta lögbær stjórnvöld í aðildarríkjunum heimilað að tilteknir frystir fjármunir eða efnahagslegur auður verði affrystur eða að tilteknir fjármunir eða efnahagslegur auður verði gerður aðgengilegur samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir
að hafa gengið úr skugga um að þessir fjármunir eða efnahagslegur auður sé nauðsynlegur til að tryggja megi tímanlega mannúðaraðstoð eða til að styðja við aðra starfsemi sem styður við grunnþarfir fólks.
3. Ef ekki liggur fyrir neikvæð ákvörðun, beiðni um upplýsingar eða tilkynning um viðbótartíma frá viðkomandi lögbæru stjórnvaldi innan fimm virkra daga frá viðtökudegi beiðni um heimild skv. 2. mgr. skal líta svo á að heimildin hafi verið veitt.
4. Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er skv. 2. og 3. mgr. innan fjögurra vikna frá því að hún er veitt.“
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 27. nóvember 2023.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti.
Y. DÍAZ PÉREZ
(1) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/338 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins og sameiginlegum afstöðum að því er varðar þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum (Stjtíð. ESB L 47, 15.2.2023, bls. 50).
(2) Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/331 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum (Stjtíð. ESB L 47, 15.2.2023, bls. 1).
(3) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum (Stjtíð. ESB L 94, 3.4.2023, bls. 48).
(4) Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum (Stjtíð. ESB L 94, 3.4.2023, bls. 1).
(5) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum (Stjtíð. ESB L, 2023/2686, 28.11.2023, ELI: http://data.europa.eu/eli/dec/2023/2686/oj).
(6) Reglugerð ráðsins (EB) nr. 314/2004 frá 19. febrúar 2004 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Zimbabwe (Stjtíð. EB L 55, 24.2.2004, bls. 1).
(7) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1284/2009 frá 22. desember 2009 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Gíneu (Stjtíð. ESB L 346, 23.12.2009, bls. 26).
(8) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 101/2011 frá 4. febrúar 2011 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis (Stjtíð. ESB L 31, 5.2.2011, bls. 1).
(9) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 401/2013 frá 2. maí 2013 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Myanmar/Burma og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 194/2008 (Stjtíð. ESB L 121, 3.5.2013, bls. 1).
(10) Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1755 frá 1. október 2015 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Búrúndí (Stjtíð. ESB L 257,2.10.2015, bls. 1).
(11) Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/2063 frá 13. nóvember 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela (Stjtíð. ESB L 295, 14.11.2017, bls. 21).
(12) Reglugerð ráðsins (ESB) 2019/796 frá 17. maí 2019 um þvingunaraðgerðir gegn netárásum sem ógna Sambandinu eða aðildarríkjum þess (Stjtíð. ESB L 129 I, 17.5.2019, bls. 1).
(13) Reglugerð ráðsins (ESB) 2019/1716 frá 14. október 2019 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Níkaragva (Stjtíð. ESB L 262, 15.10.2019, bls. 1).
(14) Reglugerð ráðsins (ESB) 2021/1275 frá 30. júlí 2021 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbanon (Stjtíð. ESB L 277 I, 2.8.2021, bls. 1).
Fylgiskjal 1.13.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2023/2686
frá 27. nóvember 2023
um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir
í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum 29. gr.,
með hliðsjón af tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Í ályktunum sínum frá 20. maí 2021 „um Orðsendingu framkvæmdastjórnarinnar til Evrópuþingsins og ráðsins um aðgerðir ESB í mannúðarmálum: nýjar áskoranir, sömu meginreglur“ áréttaði ráðið skuldbindingu sína um að forðast og ef það er ekki unnt, að milda eins og hægt er, hugsanleg óráðgerð, neikvæð
áhrif þvingunaraðgerða Sambandsins á aðgerðir í mannúðarmálum á grundvelli meginreglna. Ráðið ítrekaði að þvingunaraðgerðir Sambandsins samræmist öllum skuldbindingum samkvæmt þjóðarétti, einkum alþjóðlegum mannréttindalögum, alþjóðlegum mannúðarrétti og alþjóðalögum um flóttamenn. Það lagði
áherslu á mikilvægi þess að fylgja að fullu meginreglum um mannúð og alþjóðlegum mannúðarrétti í stefnu Sambandsins um refsiaðgerðir, m.a. með samræmdri innfellingu undanþága af mannúðarástæðum í regluverk Sambandsins um þvingunaraðgerðir þar sem við á og með því að tryggja að skilvirkur rammi sé til staðar fyrir notkun stofnana á sviði mannúðarmála á slíkum undanþágum.
2) Hinn 9. desember 2022 samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) sem vísar til fyrri ályktana um að leggja á refsiaðgerðir til að bregðast við ógnum við frið og öryggi á alþjóðavettvangi og leggur áherslu á að ráðstafanir sem aðildarríki SÞ grípa til, í því skyni að framkvæma
refsiaðgerðir, samræmist skuldbindingum þeirra samkvæmt alþjóðalögum og að þeim sé ekki ætlað að hafa neikvæð mannúðaráhrif á óbreytta borgara eða á mannúðaraðstoð eða þau sem veita hana. Í 1. mgr. ályktunar sinnar nr. 2664 (2022) ákvað öryggisráð SÞ að útvegun, vinnsla eða greiðsla fjármuna, annarra
fjáreigna eða efnahagslegs auðs eða útvegun vara og þjónustu sem nauðsynleg er til að tryggja að veita megi tímanlega mannúðaraðstoð eða styðja við aðra starfsemi sem styður við grunnþarfir fólks sé heimil, af hálfu tiltekinna aðila, og brjóti ekki gegn frystingu eigna sem lögð er á af öryggisráðinu eða framkvæmdanefndum þess um þvingunaraðgerðir.
3) Hinn 14. febrúar 2023 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2023/338(1) sem innleiddi undanþáguna af mannúðarástæðum samkvæmt ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) í regluverk Sambandsins um þvingunarráðstafanirsem kemur til framkvæmda aðgerðum sem öryggisráðið eða framkvæmdanefndir þess um þvingunarráðstafanir ákveða. Hinn 31. mars 2023 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2023/726(2) sem innleiddi undanþáguna af mannúðarástæðum samkvæmt ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) í regluverk Sambandsins um þvingunarráðstafanir sem kemur til framkvæmda aðgerðum sem öryggisráðið eða framkvæmdanefndir þess um þvingunarráðstafanir ákveða, og í viðbótaraðgerðir sem ráðið ákveður.
4) Til að efla samræmi og samkvæmni milli regluverka Sambandsins um þvingunaraðgerðir og við þau regluverk sem öryggisráðið eða framkvæmdanefndir þess um þvingunarráðstafanir samþykkja, og til að tryggja að veita megi tímanlega mannúðaraðstoð eða styðja við aðra starfsemi sem styður við grunnþarfir fólks,
telur ráðið að taka ætti upp í tiltekin regluverk Sambandsins um þvingunarráðstafanir undanþágu frá frystingu fjármuna tilgreindra einstaklinga og lögaðila og frá takmörkunum á því að gera fjármuni eða efnahagslegan auð aðgengilegan þeim, í þágu aðila sem um getur í ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022), samtaka
og fagstofnana, sem Sambandið hefur veitt vottorð um samstarf í mannúðarmálum (e. Humanitarian Partnership Certificate), samtaka og fagstofnana sem hafa vottun eða viðurkenningu frá aðildarríki eða sérstofnana aðildarríkja. Enn fremur telur ráðið að innleiða ætti undanþágufyrirkomulag eða breyta fyrirliggjandi undanþágufyrirkomulagi fyrir þau samtök og þá aðila sem taka þátt í mannúðarstarfi en geta ekki nýttsér undanþáguna. Ráðið telur einnig að innleiða ætti endurskoðunarákvæði í tengslum við þessar undanþágur. Auk þesstelur ráðið að innleiða ætti endurskoðunarákvæði í tengslum við gildandi ákvæði um undanþágur af mannúðarástæðum í tiltekin önnur regluverk Sambandsins um þvingunarráðstafanir.
5) Því er nauðsynlegt að breyta ákvörðunum ráðsins 2010/638/SSUÖ(3), 2011/72/SSUÖ(4), 2011/101/SSUÖ(5), 2011/173/SSUÖ(6), 2012/642/SSUÖ(7), 2013/184/SSUÖ(8), 2014/145/SSUÖ(9), (SSUÖ) 2015/1763(10), (SSUÖ) 2017/2074(11), (SSUÖ) 2019/797(12), (SSUÖ) 2019/1720(13), (SSUÖ) 2021/1277(14), (SSUÖ) 2023/891(15) og (SSUÖ) 2023/1532(
16).
6) Frekari aðgerða er þörf af hálfu Sambandsins til þess að hrinda í framkvæmd tilteknum aðgerðum í ákvörðun þessari.
SAMÞYKKT ÁKVÖRÐUN ÞESSA:
1. gr.
Ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 er breytt sem hér segir:
1) Eftirfarandi málsgreinar bætast við 7. gr.:
„8. Ákvæði 1., 2. og 3. mgr. skulu ekki gilda um útvegun, vinnslu eða greiðslu fjármuna, annarra fjáreigna eða efnahagslegs auðs eða útvegun vara og þjónustu sem nauðsynleg er til að tryggja að veita megi tímanlega mannúðaraðstoð eða styðja við aðra starfsemi sem styður við grunnþarfir fólks þegar slík aðstoð
og önnur starfsemi er framkvæmd af hálfu:
a) Sameinuðu þjóðanna (SÞ), þ.m.t. áætlana þeirra, sjóða og annarra rekstrareininga og stofnana, sem og sérstofnana þeirra og tengdra stofnana,
b) alþjóðastofnana,
c) stofnana á sviði mannúðarmála sem hafa stöðu áheyrnarfulltrúa á allsherjarþingi SÞ og aðila að þessum mannúðarstofnunum,
d) frjálsra félagasamtaka með tvíhliða eða marghliða fjármögnun sem taka þátt í viðbragðsáætlunum SÞ um mannúðaraðstoð, viðbragðsáætlunum SÞ vegna flóttafólks, öðrum áköllum SÞ eða klösum á sviði mannúðarmála sem samhæfingarskrifstofa aðgerða SÞ í mannúðarmálum samhæfir,
e) samtaka og fagstofnana, sem Sambandið hefur veitt vottorð um samstarf í mannúðarmálum (e. Humanitarian Partnership Certificate) eða sem hafa vottun eða viðurkenningu frá aðildarríki í samræmi við landsbundna málsmeðferð,
f) sérstofnana aðildarríkjanna eða
g) starfsfólks, styrkþega, dótturfélaga eða framkvæmdaraðila þeirra rekstrareininga sem um getur í a- til f-lið á meðan og að því marki sem þeir starfa í þessum stöðum.
9. Með fyrirvara um 8. mgr. og þrátt fyrir 1., 2. og 3. mgr. geta lögbær stjórnvöld aðildarríkis heimilað að tilteknir frystir fjármunir eða efnahagslegur auður verði affrystur eða að tilteknir fjármunir eða efnahagslegur auður verði gerður aðgengilegur samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa gengið úr skugga um að þessir fjármunir eða efnahagslegur auður sé nauðsynlegur til að tryggja megi tímanlega mannúðaraðstoð eða til að styðja við aðra starfsemi sem styður við grunnþarfir fólks.
10. Ef ekki liggur fyrir neikvæð ákvörðun, beiðni um upplýsingar eða tilkynning um viðbótartíma frá viðkomandi lögbæru stjórnvaldi innan fimm virkra daga frá viðtökudegi beiðni um heimild skv. 9. mgr. skal líta svo á að heimildin hafi verið veitt.
11. Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er skv. 9. og 10. mgr. innan fjögurra vikna frá því að hún er veitt.“
2) Eftirfarandi málsgrein bætist við í 13. gr.:
„Undantekningarnar sem um getur í 8. og 9. mgr. 7. gr. að því er varðar 1., 2. og 3. mgr. 7. gr. skal endurskoða með reglulegu millibili og a.m.k. á 12 mánaða fresti, eða að brýnni beiðni aðildarríkis, æðsta fulltrúans eða framkvæmdastjórnarinnar í kjölfar grundvallarbreytingar á aðstæðum.“
2. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Gjört í Brussel 27. nóvember 2023.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti.
Y. DÍAZ PÉREZ
(1) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/338 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins og sameiginlegum afstöðum að því er varðar þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum (Stjtíð. ESB L 47, 15.2.2023, bls. 50).
(2) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum (Stjtíð. ESB L 94, 3.4.2023, bls. 48).
(3) Ákvörðun ráðsins 2010/638/SSUÖ frá 25. október 2010 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Gíneu (Stjtíð. ESB L 280, 26.10.2010, bls. 10).
(4) Ákvörðun ráðsins 2011/72/SSUÖ frá 31. janúar 2011 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstaklingum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Túnis (Stjtíð. ESB L 28, 2.2.2011, bls. 62).
(5) Ákvörðun ráðsins 2011/101/SSUÖ frá 15. febrúar 2011 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Zimbabwe (Stjtíð. ESB L 42, 16.2.2011, bls. 6).
(6) Ákvörðun ráðsins 2011/173/SSUÖ frá 21. mars 2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Bosníu og Hersegóvínu (Stjtíð.ESB L 76, 22.3.2011, bls. 68).
(7) Ákvörðun ráðsins 2012/642/SSUÖ frá 15. október 2012 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu (Stjtíð. ESB L 285, 17.10.2012, bls. 1).
(8) Ákvörðun ráðsins 2013/184/SSUÖ frá 22. apríl 2013 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Myanmar/Burma og niðurfellingu ákvörðunar 2010/232/SSUÖ (Stjtíð. ESB L 111, 23.4.2013, bls. 75).
(9) Ákvörðun ráðsins 2014/145/SSUÖ frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (Stjtíð. ESB L 78, 17.3.2014, bls. 16).
(10) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1763 frá 1. október 2015 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Búrúndí (Stjtíð. ESB L 257, 2.10.2015, bls. 37).
(11) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/2074 frá 13. nóvember 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela (Stjtíð. ESB L 295, 14.11.2017, bls. 60).
(12) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/797 frá 17. maí 2019 um þvingunaraðgerðir gegn netárásum sem ógna Sambandinu eða aðildarríkjum þess (Stjtíð. ESB L 129 I, 17.5.2019, bls. 13).
(13) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/1720 frá 14. október 2019 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Níkaragva (Stjtíð. ESB L 262, 15.10.2019, bls. 58).
(14) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/1277 frá 30. júlí 2021 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbanon (Stjtíð. ESB L 277 I, 2.8.2021, bls. 16).
(15) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/891 frá 28. apríl 2023 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða sem grafa undan stöðugleika í Lýðveldinu Moldóvu (Stjtíð. ESB L 114, 2.5.2023, bls. 15).
(16) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/1532 frá 20. júlí 2023 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu (Stjtíð. ESB L 186, 25.7.2023, bls. 20).
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.