Fara beint í efnið

Prentað þann 22. des. 2024

Breytingareglugerð

378/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 772/2012, um framkvæmdaleyfi.

1. gr.

7. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Leyfisveitandi framkvæmdaleyfis skal árita leyfisbréfið, uppdrætti og önnur hönnunargögn, til staðfestingar á samþykki og útgáfu leyfisins. Leyfisveitanda ber að tilkynna umsækjanda um niðurstöðu sína er varðar umsókn um framkvæmdaleyfi eins fljótt og unnt er og innan fjögurra mánaða frá því að fullnægjandi umsókn um leyfi kom fram ef um er að ræða framkvæmdaleyfi í tengslum við uppbyggingu fjarskiptainnviða fyrir dreifi- og flutningskerfi fjarskipta sbr. lög um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraðafjarskiptaneta. Í undantekningartilvikum er heimilt að framlengja afgreiðslufrest vegna framkvæmdar í tengslum við uppbyggingu fjarskiptainnviða fyrir dreifi- og flutningskerfi fjarskipta um allt að einn mánuð. Rökstyðja skal höfnun umsóknar um framkvæmdaleyfi og tilgreina kæruheimild og kærufresti.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/61/ESB frá 15. maí 2014 um ráðstafanir til að lækka kostnað við uppbyggingu á háhraða rafrænum fjarskiptanetum.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 45. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 3. apríl 2020.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.