Prentað þann 2. apríl 2025
372/2013
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 200/2012 varðandi það markmið Sambandsins að draga úr Salmonella enteritidis og Salmonella typhimurium í hópum holdakjúklinga, eins og kveðið er á um í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2160/2003.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 192/2012 frá 1. nóvember 2012 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 200/2012 varðandi það markmið Sambandsins að draga úr Salmonella enteritidis og Salmonella typhimurium í hópum holdakjúklinga, eins og kveðið er á um í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2160/2003. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 9, frá 7. febrúar 2013, bls. 247.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 10. gr. laga nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
5. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. apríl 2013.
F. h. r.
Halldór Runólfsson.
Eggert Ólafsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.