Fara beint í efnið

Prentað þann 22. des. 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 29. maí 2021

364/2014

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 897/2012 um losunarheimildir og einingar sem viðurkenndar eru í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

1. gr.

7. gr. orðast svo:

Eftirfarandi EES-gerðir skulu öðlast gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 550/2011 frá 7. júní 2011 um ákvörðun á tilteknum takmörkunum sem gilda um notkun alþjóðlegra inneigna vegna verkefna varðandi iðnaðargastegundir samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB, sem vísað er til í tölulið 21ale, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2011, frá 26. júlí 2012, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, XX. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 59 frá 18. október 2012, 2012/EES/59/45, bls. 853-855.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1123/2013 frá 8. nóvember 2013 um að ákvarða alþjóðleg réttindi til inneignar samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2003/87/EB, sem vísað er til í tölul. 21alh, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 60/2014, frá 4. apríl 2014 með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, XX. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 10. apríl 2014, 2014/EES/23/56, bls. 1042-1043.

Reglugerðin er einnig sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:

  1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB frá 13. október 2003 um að koma á fót kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan bandalagsins og um breytingu á tilskipun ráðsins 96/61/EB, sem vísað er til í tölulið 21al í III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2007, frá 27. október 2007.
  2. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/101/EB frá 19. nóvember 2008 um breytingu á tilskipun 2003/87/EB þannig að kerfið fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan bandalagsins taki til flugstarfsemi, sem vísað er til í tölulið 21al í III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2011 frá 1. apríl 2011.
  3. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/29/EB frá 23. apríl 2009 um breytingu á tilskipun 2003/87/EB til að bæta og víkka út kerfi bandalagsins fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda, sem vísað er til í tölulið 21al, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2011, frá 26. júlí 2012.

2. gr. Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1123/2013 um að ákvarða alþjóðleg réttindi til inneignar samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2003/87/EB, sem vísað er til í tölul. 21alh, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 60/2014, frá 4. apríl 2014.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 33. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 14. apríl 2014.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.