Fara beint í efnið

Prentað þann 24. apríl 2024

Breytingareglugerð

362/2018

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 674/2017 um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, m- og n-liður, svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1261 frá 12. júlí 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar staðgönguaðferð við vinnslu á tiltekinni bræddri fitu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2018, frá 9. febrúar 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14, frá 8. mars 2018, bls. 368.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1262 frá 12. júlí 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar notkun húsdýraáburðar úr alidýrum sem eldsneyti í brennsluverum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2018, frá 9. febrúar 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14, frá 8. mars 2018, bls. 172.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 13. og 29. gr. a laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og 17. gr. a laga nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir, öll með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. mars 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.