Fara beint í efnið

Prentað þann 22. des. 2024

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 25. nóv. 2017 – 14. nóv. 2018 Sjá núgildandi

361/2016

Reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu.

I. KAFLI Varnartengdar vörur.

1. gr. Leyfisskylda.

Enginn má flytja út varnartengdar vörur nema með leyfi ráðherra. Listi yfir varnartengdar vörur og nánari ákvæði eru í gerðum sem innleiddar eru skv. 2. gr.

Enginn má stunda miðlunarþjónustu, þjónusta erlendis eða þjónusta hérlendis til útflutnings varnartengdar vörur skv. 2. gr. nema með leyfi ráðherra.

2. gr. Innleiðing.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um varnartengdar vörur skulu öðlast gildi hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka við EES-samninginn (um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun), bókun I (um altæka aðlögun) og öðrum ákvæðum samningsins:

1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2009/43/EB frá 6. maí 2009 um að einfalda skilmála og skilyrði vegna tilflutnings varnartengdra vara innan Bandalagsins (EES-viðbætir nr. 56, 10. október 2013, bls. 801-836), sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 111/2013, 14. júní 2013.
1.1 Tilmæli framkvæmdastjórnarinnar frá 11. janúar 2011 um vottun fyrirtækja á sviði varnartengdra vara skv. 9. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/43/EB um að einfalda skilmála og skilyrði vegna tilflutnings varnartengdra vara innan Bandalagsins (2011/24/ESB) (EES-viðbætir nr. 36, 12. júní 2014, bls. 376-388), sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 11/2013, 14. júní 2013.
1.2 Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/433 frá 7. mars 2017 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/43/EB að því er varðar skrána yfir varnartengdar vörur (EES-viðbætir nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 44-77), sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 136/2017, 7. júlí 2017.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um varnartengdar vörur skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 7. gr.:

  1. Sameiginleg afstaða ráðsins 2008/944/SSUÖ frá 8. desember 2008 um skilgreiningu á sameiginlegum reglum um eftirlit með útflutningi á hernaðarlegri tækni og búnaði, sbr. fylgiskjal 4 við reglugerð nr. 758/2014 um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu.

II. KAFLI Hlutir með tvíþætt notagildi.

3. gr. Leyfisskylda.

Enginn má flytja út hluti með tvíþætt notagildi nema með leyfi ráðherra. Listi yfir hluti með tvíþætt notagildi og nánari ákvæði eru í gerðum sem innleiddar eru skv. 4. gr.

Enginn má stunda miðlunarþjónustu, þjónusta erlendis eða þjónusta hérlendis til útflutnings hluti með tvíþætt notagildi skv. 4. gr. nema með leyfi ráðherra.

4. gr. Innleiðing.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um eftirlit með útflutningi skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 7. gr.:

1. Reglugerð ráðsins (EB) nr. 428/2009 frá 5. maí 2009 um að koma á fót Bandalagskerfi um eftirlit með útflutningi, tilflutningi, miðlun og viðkomu hluta með tvíþætt notagildi, sbr. fylgiskjal 1 við reglugerð nr. 800/2011 um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu (reglugerðin var felld brott með reglugerð nr. 758/2014, nema fylgiskjal 1, sbr. 13. gr. reglugerðarinnar).
1.1 Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1232/2011 frá 16. nóvember 2011 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 428/2009 um að koma á fót Bandalagskerfi um eftirlit með útflutningi, tilflutningi, miðlun og viðkomu hluta með tvíþætt notagildi (sjá leiðréttingu í Stjórnartíðindum ESB L 134, 29. maí 2009), sbr. fylgiskjal 2 við reglugerð nr. 758/2014 um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu.
1.2 Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 599/2014 frá 16. apríl 2014 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 428/2009 um að koma á fót Bandalagskerfi um eftirlit með útflutningi, tilflutningi, miðlun og viðkomu hluta með tvíþætt notagildi, sbr. fylgiskjal 3 við reglugerð nr. 294/2015 um breyting á reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 758/2014.
1.3 Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1969 frá 12. september 2016 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 428/2009 um að setja Bandalagsreglur um eftirlit með útflutningi, flutningi, miðlun og umflutningi hluta með tvíþætt notagildi, sbr. fylgiskjal 4.

III. KAFLI Skyld vara, tækni eða þjónusta háð leyfisveitingu.

5. gr. Skyld vara, tækni eða þjónusta háð leyfisveitingu.

Auk vöru, tækni og þjónustu sem eru háðar leyfum skv. 1. og 3. gr. er óheimilt að flytja út án leyfis ráðherra vöru, tækni eða þjónustu sem:

  1. útflytjanda er kunnugt um, hann má ætla eða ráðuneytið tilkynnir honum að séu eða kunni að vera ætlaðar, í heild eða að hluta, til notkunar í hernaðarlegum tilgangi, til hryðjuverka eða til bælingar innanlands og að útflutningurinn brjóti í bága við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands eða ógni varnar- eða öryggishagsmunum þess eða Bandalagsríkja,
  2. ráðuneytið tilkynnir útflytjanda að séu eða kunni að vera ætlaðar til nota, í heild eða að hluta, í tengslum við þróun, framleiðslu, meðhöndlun, rekstur, viðhald, geymslu, greiningu, auðkenningu eða útbreiðslu efna-, sýkla- eða kjarnavopna eða annars kjarnasprengjubúnaðar eða við þróun, framleiðslu, viðhald eða geymslu á flugskeytum sem geta borið slík vopn,
  3. er til hernaðarnota á svæðum þar sem er stríð, stríð vofir yfir eða þar sem er borgarastyrjöld,
  4. nota mætti til bælingar innanlands í öðrum ríkjum þar sem er stríð, stríð vofir yfir eða þar sem er borgarastyrjöld, sbr. 6. gr., eða sem fellur undir þvingunaraðgerðir skv. a-lið 2. mgr.

Enginn má flytja inn eða út án leyfis ráðherra:

  1. vöru, tækni eða þjónustu sem eru leyfisskyldar samkvæmt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sett á grundvelli 41. gr. VII. kafla stofnskrár Sameinuðu þjóðanna eða annarra þvingunaraðgerða samkvæmt lögum um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008,
  2. hrádemanta frá átakasvæðum,
  3. tól sem nota má til pyntinga eða við framkvæmd dauðarefsingar, sbr. 6. gr.

Óheimilt er án leyfis ráðherra að:

  1. flytja inn eða láta hafa viðkomu hérlendis hluti sem geta nýst, í heild eða að hluta, í tengslum við þróun, framleiðslu, meðhöndlun, rekstur, viðhald, geymslu, greiningu, auðkenningu eða útbreiðslu efna-, sýkla- eða kjarnavopna eða annars kjarnasprengjubúnaðar eða þróun, framleiðslu, viðhald eða geymslu á flugskeytum sem geta borið slík vopn,
  2. senda upp flugskeyti sem er 500 kg eða meira að þyngd og með 300 km fluggetu eða meira.

6. gr. Innleiðing.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um viðskipti með tilteknar vörur sem unnt er að nota til aftöku, pyntinga eða annarrar grimmdarlegrar, ómannúðlegrar eða niðurlægjandi meðferðar eða refsingar skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 7. gr.:

1. Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1236/2005 frá 27. júní 2005 um viðskipti með tilteknar vörur sem unnt er að nota til aftöku, pyntinga eða annarrar grimmdarlegrar, ómannúðlegrar eða niðurlægjandi meðferðar eða refsingar (sjá leiðréttingu í Stjórnartíðindum ESB L 200, 30. júlí 2005), sbr. fylgiskjal 1.
1.1 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) nr. 775/2014 frá 16. júlí 2014 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1236/2005 frá 27. júní 2005 um viðskipti með tilteknar vörur sem unnt er að nota til aftöku, pyntinga eða annarrar grimmdarlegrar, ómannúðlegrar eða niðurlægjandi meðferðar eða refsingar, sbr. fylgiskjal 1.1.

Listi yfir vörur, tækni og þjónustu sem nota mætti til bælingar innanlands í öðrum ríkjum þar sem er stríð, stríð vofir yfir eða þar sem er borgarastyrjöld er birtur í fylgiskjali 2.

IV. KAFLI Almenn ákvæði.

7. gr. Aðlögun.

Gerðir skv. 2. mgr. 2. gr., 4. og 6. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

  1. ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins ("EB", "ESB", "Bandalagsins" eða "sameiginlega markaðarins") eiga við um íslenska ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,
  2. ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,
  3. tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,
  4. tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,
  5. vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er:
    www.utanrikisraduneyti.is/malefni/lagamal/utflutningseftirlit

Gerðir sem tilgreindar eru í 2., 4. og 6. gr. binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt.

Listar yfir hluti sem vísað er til í framangreindum gerðum eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008 og b-lið 1. mgr. 14. gr. laga um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 58/2010 (eins og þeim var breytt).

Ákvæði sem varða tilflutning á varnartengdum vörum og hlutum með tvíþætt notagildi milli ríkja Evrópusambandsins eiga við um útflutning til EES-ríkja, þ.m.t. eru útflutningsleyfi gefin út í stað tilflutningsleyfa.

8. gr. Leyfisskilyrði.

Utanríkisráðuneytið heldur skrá yfir aðila sem hafa fengið leyfi til þess að flytja út eða þjónusta varnartengdar vörur eða hluti með tvíþætt notagildi.

Áður en útflytjandi notar almennt útflutningsleyfi skal hann tilkynna það utanríkisráðuneytinu skriflega.

Ef útflytjandi notar almennt útflutningsleyfi eða annað leyfi sem heimilar útflutning í fleiri en einni sendingu skal hann skila skriflegu yfirliti til ráðuneytisins fyrir hvern ársfjórðung, frá 1. janúar að telja, innan 30 daga. Þar skulu koma fram sömu upplýsingar og skila þarf inn vegna umsóknar um einstakt útflutningsleyfi.

Umsókn um útflutningsleyfi fyrir varnartengdar vörur, sbr. 2. gr. eða hluti með tvíþætt notagildi, sem tilgreindir eru í IV. viðauka reglugerðar ráðsins (EB) nr. 428/2009, sbr. 7. gr., skal fylgja vottorð um lokanotanda vöru.

Ef sótt er um útflutningsleyfi fyrir sendingu sem inniheldur vöru eða tækni, sem eru háð útflutningsleyfi annars ríkis, þá skal afrit þess leyfis fylgja umsókn.

Útflytjandi skal tilgreina númer almenns útflutningsleyfis eða dagsetningu einstaks útflutningsleyfis eða heildarleyfis í útflutningsskýrslu sem hann skilar samkvæmt tollalögum nr. 88/2005.

Framsal leyfis samkvæmt reglugerð þessari er óheimilt nema með leyfi ráðherra.

9. gr. Undanþágur.

Eftirfarandi varnartengdar vörur og hlutir með tvíþætt notagildi sem eru undanþegin leyfisskyldu samkvæmt þessari reglugerð:

  1. vara í erlendri eigu sem skilað er til útlanda eftir að hafa verið tímabundið flutt inn í tengslum við viðgerð, viðhald, sýningu, kynningu, prófun, kennslu, æfingu eða þjálfun,
  2. björgunartæki eða búnaður sem er fluttur út í tengslum við hjálparstörf eða neyðaraðstoð,
  3. vopn sem er háð útflutningsleyfi skv. vopnalögum nr. 16/1998. Lögreglustjóri veitir slík leyfi að höfðu samráði við utanríkisráðuneytið. Vopn í tímabundnum útflutningi allt að 3 mánuðum eða vegna búferlaflutninga eru þó undanþegin slíku samráði,
  4. vörur sem eingöngu eru í beinni gegnumferð um íslenskt tollyfirráðasvæði, þegar sendandi og móttakandi eru staðsettir utan íslensks tollyfirráðasvæðis. Þetta á þó ekki við um hluti sem falla undir 3. eða 4. mgr. 4. gr. laga um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 58/2010,
  5. vörur, tækni og þjónusta til nota á landgrunni Íslands,
  6. vörur, tækni og þjónusta til nota um borð í íslenskum skipum eða loftförum,
  7. tímabundinn útflutningur íslenskra stjórnvalda til eigin nota erlendis, viðgerðar, viðhalds eða uppfærslu.

10. gr. Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn ákvæðum reglugerðar þessarar skal sæta viðurlögum skv. 13. gr. laga um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 58/2010, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

11. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4., 5. og 14. gr. laga um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 58/2010 og 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 758/2014 um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu, ásamt síðari breytingum. Eftirfarandi fylgiskjöl halda þó gildi sínu:

  1. Reglugerð ráðsins (EB) nr. 428/2009 frá 5. maí 2009 um að koma á fót Bandalagskerfi um eftirlit með útflutningi, tilflutningi, miðlun og viðkomu hluta með tvíþætt notagildi, sbr. fylgiskjal 1 við reglugerð nr. 800/2011.
  2. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1232/2011 frá 16. nóvember 2011 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 428/2009 um að koma á fót Bandalagskerfi um eftirlit með útflutningi, tilflutningi, miðlun og viðkomu hluta með tvíþætt notagildi (sjá leiðréttingu í Stjórnartíðindum ESB L 134, 29. maí 2009), sbr. fylgiskjal 2 við reglugerð nr. 758/2014.
  3. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 599/2014 frá 16. apríl 2014 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 428/2009 um að koma á fót Bandalagskerfi um eftirlit með útflutningi, tilflutningi, miðlun og viðkomu hluta með tvíþætt notagildi , sbr. fylgiskjal 3 við reglugerð nr. 294/2015.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2420 frá 12. október 2015 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 428/2009 um að koma á fót Bandalagskerfi um eftirlit með útflutningi, tilflutningi, miðlun og viðkomu hluta með tvíþætt notagildi (sjá leiðréttingu í Stjórnartíðindum ESB L 430, 24. desember 2015), sbr. fylgiskjal við nr. 142/2016.
  5. Sameiginleg afstaða ráðsins 2008/944/SSUÖ frá 8. desember 2008 um skilgreiningu á sameiginlegum reglum um eftirlit með útflutningi á hernaðarlegri tækni og búnaði, sbr. fylgiskjal 4 við reglugerð nr. 758/2014.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.