Prentað þann 22. nóv. 2024
Breytingareglugerð
357/2013
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 727/2009, um innleiðingu viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2006/2004 frá 27. október 2004 um samvinnu milli innlendra yfirvalda sem bera ábyrgð á framkvæmd laga um neytendavernd (reglugerð um samvinnu um neytendavernd).
1. gr.
Í stað viðauka við reglugerðina kemur nýr viðauki, sem birtur er sem fylgiskjal með þessari reglugerð.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laga nr. 56/2007 um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 29. mars 2013.
Ögmundur Jónasson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.