Prentað þann 5. apríl 2025
345/2016
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1253/2014 frá 7. júlí 2014, um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun loftræstieininga.
1. gr.
Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 61 og 26m í kafla IV í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 312/2015, frá 11. desember 2015, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1253/2014, frá 7. júlí 2014, um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun loftræstieininga.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1253/2014 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19/2016, 31. mars 2016, bls. 57.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. apríl 2016.
Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Erla Sigríður Gestsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.