Prentað þann 26. apríl 2025
344/2016
Reglugerð um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 811/2013 frá 18. febrúar 2013, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar hitara fyrir rými, sambyggðra hitara, pakka með hitara fyrir rými, hitastýringu og búnaði sem nýtir sólarorku og pakka með sambyggðum hitara, hitastýringu og búnaði sem nýtir sólarorku.
1. gr.
Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 4s í kafla IV í II. viðauka og á eftir lið 11s í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 310/2015, frá 11. desember 2015, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 811/2013 frá 18. febrúar 2013 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar hitara fyrir rými, sambyggðra hitara, pakka með hitara fyrir rými, hitastýringu og búnaði sem nýtir sólarorku og pakka með sambyggðum hitara, hitastýringu og búnaði sem nýtir sólarorku.
2. gr.
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 811/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5/2016, 28. janúar 2016, bls. 195.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. apríl 2016.
Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Erla Sigríður Gestsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.