Prentað þann 22. des. 2024
338/2008
Reglugerð um breytingu á reglugerð, nr. 274/2006, um skilyrði undanþágu frá greiðslu olíugjalds og um greiðslu sérstaks kílómetragjalds, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 3. tölul. B. liðar 1. gr. bætist við nýr stafliður svohljóðandi:
Vörubifreið sem útbúin er til blöndunar og hleðslu á sérstökum efnablöndum sem ætlaðar eru til sprenginga.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 4. mgr. 4. gr. laga nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald, öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytinu, 18. mars 2008.
F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.
Guðmundur Árnason.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.