Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 2. apríl 2009 – 2. sept. 2009 Sjá núgildandi

337/2009

Reglugerð um öryggisstjórnun skipa.

1. gr. Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar er að efla öryggisstjórnun skipa og öryggi við rekstur þeirra, svo og að koma í veg fyrir mengun frá skipum.

2. gr. Innleiðing.

  1. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 336/2006 frá 15. febrúar 2006 um að hrinda í framkvæmd ákvæðum alþjóðlega kóðans um öryggisstjórnun skipa innan Bandalagsins og um niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EB), sem vísað er til í 56u í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 131/2006 frá 27. október 2006 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 336/2006 var birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 77 frá 18. desember 2008, bls. 20 og verður hluti af reglugerð þessari.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 17. gr. laga nr. 76/2001 um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 17. mars 2009.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.