Prentað þann 22. nóv. 2024
Reglugerð með breytingum síðast breytt 2. sept. 2009
337/2009
Reglugerð um öryggisstjórnun skipa.
1. gr. Markmið.
Markmið þessarar reglugerðar er að efla öryggisstjórnun skipa og öryggi við rekstur þeirra, svo og að koma í veg fyrir mengun frá skipum.
2. gr. Innleiðing.
- Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 336/2006 frá 15. febrúar 2006 um að hrinda í framkvæmd ákvæðum alþjóðlega kóðans um öryggisstjórnun skipa innan Bandalagsins og um niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EB), sem vísað er til í 56u í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 131/2006 frá 27. október 2006 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 336/2006 var birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 77 frá 18. desember 2008, bls. 20 og verður hluti af reglugerð þessari.
- Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 540/2008 frá 16. júní 2008 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 336/2006 um að hrinda í framkvæmd ákvæðum alþjóðlega kóðans um öryggisstjórnun skipa innan Bandalagsins að því er varðar snið eyðublaða, sem vísað er til í 56u í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2008 frá 7. nóvember 2008 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 540/2008 var birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37, frá 9. júlí 2009, bls. 237 og verður hluti af reglugerð þessari.
3. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 17. gr. laga nr. 76/2001 um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.