Prentað þann 22. des. 2024
336/2020
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 331/2000, um vörugjald af ökutækjum, með síðari breytingum.
1. gr.
7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Vörugjald af innfluttum ökutækjum og öðrum gjaldskyldum vörum skal lagt á og innheimt við tollafgreiðslu. Að ósk innflytjanda skal fresta innheimtu vörugjalds af skráningarskyldum ökutækjum þar til þau eru skráð samkvæmt umferðarlögum, þó ekki lengur en í tólf mánuði frá tollafgreiðsludegi.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skal fresta innheimtu vörugjalds af skráningarskyldri bifreið þess sem flytur hingað til lands til varanlegrar búsetu, í allt að einn mánuð frá komudegi flutningsfars til landsins. Það er skilyrði að innflytjandi flytji bifreiðina til landsins eigi síðar en einum mánuði frá komu hans sjálfs til landsins.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 28. gr. laga nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., öðlaðist gildi frá og með 1. mars 2020.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 16. apríl 2020.
F. h. r.
Helga Jónsdóttir.
Steinar Örn Steinarsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.