Prentað þann 21. sept. 2026
334/2026
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1250/2024 um útlit og viðvörunarmerkingar tóbaksvara, losun skaðlegra tóbaksefna, mæliaðferðir og skýrslugjöf.
1. gr.
Ákvæði til bráðabirgða í reglugerðinni orðast svo:
Tóbaksvörur sem merktar eru í samræmi við reglugerð um viðvörunarmerkingar á tóbaki og mælingar og hámark skaðlegra tóbaksefna, nr. 790/2011, má flytja til landsins næstu 24 mánuði frá gildistöku reglugerðar þessarar og hafa í sölu í allt að 30 mánuði frá gildistöku reglugerðar þessarar.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, tekur þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 27. mars 2026.
Alma D. Möller.
Guðríður Bolladóttir.
B deild - Útgáfudagur: 8. apríl 2026
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.