Fara beint í efnið

Prentað þann 1. nóv. 2026

Breytingareglugerð

331/2025

Reglugerð um (24.) breytingu á reglugerð nr. 167/2015 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 92. og 93. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/859 frá 18. mars 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar flokkun efnisins natríumsalisýlats með tilliti til hámarksgildis leifa í matvælum úr dýraríkinu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 276/2024 frá 6. desember 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 831.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/860 frá 18. mars 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar efnið 17β-estradíól. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 276/2024 frá 6. desember 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 834.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 25/1993, og lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 27. febrúar 2025.

Hanna Katrín Friðriksson
atvinnuvegaráðherra.

Svava Pétursdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.