Prentað þann 18. des. 2024
329/2020
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1221/2012 um menntun, réttindi og skyldur iðjuþjálfa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.
1. gr.
Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa 180 ECTS-eininga BS-prófi í iðjuþjálfunarfræði auk 60 ECTS-eininga viðbótarprófi á meistarastigi í iðjuþjálfun frá heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri (samtals 240 ECTS-einingar). Einnig má veita leyfi skv. 2. gr. þeim sem lokið hafa 240 ECTS-eininga BS-prófi í iðjuþjálfunarfræði frá heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 30. og 31. gr. laga nr. 34/2012, um heilbrigðisstarfsmenn, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 25. mars 2020.
Svandís Svavarsdóttir.
Hrönn Ottósdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.