Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 1. maí 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 19. apríl 2016 – 15. nóv. 2023 Sjá núgildandi

327/2016

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín (VI).

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um innflutning og útflutning á víni milli Íslands og annarra ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu. Vín sem upprunnið er frá landi utan Evrópska efnahagssvæðisins heyrir ekki undir reglugerðina, samanber bókun 47 við EES-samninginn.

2. gr. Innleiðing reglugerða.

Eftirtaldar reglugerðir Evrópusambandsins um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín skulu gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í viðkomandi ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar:

  1. Tilteknar vínfræðilegar vinnsluaðferðir og skráning á þessum vinnsluaðferðum í skrár sem halda skal fyrir víngeirann:

    1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1576, frá 6. júlí 2015 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 19/2016, 31. mars 2016, bls. 489), um breytingu á reglugerð (EB) nr. 606/2009 að því er varðar tilteknar vínfræðilegar vinnsluaðferðir og á reglugerð (EB) nr. 436/2009 að því er varðar skráningu á þessum vinnsluaðferðum í skrár sem halda skal fyrir víngeirann, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 64/2016, frá 18. mars 2016, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.
  2. Aukning á hámarksheildarinnihaldi brennisteinsdíoxíðs ef það er nauðsynlegt vegna loftslagsskilyrða:

    1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/596, frá 15. apríl 2015 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 19/2016, 31. mars 2016, bls. 487), um breytingu á reglugerð (EB) nr. 606/2009 að því er varðar aukningu á hámarksheildarinnihaldi brennisteinsdíoxíðs ef það er nauðsynlegt vegna loftslagsskilyrða, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2016, frá 18. mars 2016, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.
  3. Heimild um hækkun marka fyrir auðgun víns sem framleitt er úr þrúgum úr uppskeru ársins 2014 á tilteknum vínræktarsvæðum:

    1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1271/2014, frá 28. nóvember 2014 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 19/2016, 31. mars 2016, bls. 493), um að heimila hækkun marka fyrir auðgun víns sem framleitt er úr þrúgum úr uppskeru ársins 2014 úr tilteknum vínþrúguyrkjum í tilteknum vínræktarhéruðum eða hlutum þeirra, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 65/2016, frá 18. mars 2016, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.
  4. Sameignlegt markaðskerfi í landbúnaði og sértæk ákvæði varðandi tilteknar landbúnaðarvörur:

    1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013, frá 17. desember 2013 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 19/2016, 31. mars 2016, bls. 111), um sameiginlegt markaðskerfi fyrir landbúnaðarafurðir og um niðurfellingu á reglugerðum ráðsins (EBE) nr. 922/72, (EBE) nr. 234/79, (EB) nr. 1037/2001 og (EB) nr. 1234/2007, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 40/2016, frá 5. febrúar 2016, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.

Flest ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013 varða ekki EES þar sem þau tengjast sameiginlegri skipulagningu markaða með landbúnaðarvörur. Því eru talin upp sérstaklega þau ákvæði sem gilda, í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 40/2016.

3. gr. Gildistaka og lagastoð.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 193. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 5. apríl 2016.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Steinar Örn Steinarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.