Prentað þann 24. nóv. 2024
321/2024
Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 186/2020, um tímabundið bann við veiðum með fiskibotnvörpu á veiðisvæðum humars.
1. gr.
1. málsliður 1. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Allar veiðar með fiskibotnvörpu eru bannaðar á eftirfarandi veiðisvæðum humars frá og með 16. mars 2024 til og með 15. mars 2026:
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 8. og 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast gildi 15. mars 2024.
Matvælaráðuneytinu, 4. mars 2024.
Katrín Jakobsdóttir.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.