Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 15. apríl 2021
Sýnir breytingar gerðar 26. mars 2021 af rg.nr. 327/2021

321/2021

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr. Markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við ríkisstjórnina, að setja á tímabundna takmörkun á samkomum eftir því sem nánar greinir í reglugerð þessari.

Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

2. gr. Gildissvið.

Takmörkun á samkomum tekur gildi 25. mars 2021 og gildir til og með 15. apríl 2021.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Reglugerðin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna né til loftfara, skipa í millilandaferðum og skipa sem stunda fiskveiðar.

Reglugerðin tekur ekki til heilbrigðisstofnana, hjúkrunarheimila og annarra sambærilegra stofnana, en þær skulu setja sér reglur um sóttvarnir, sbr. 6. gr.

Ákvæði 3. og 4. gr. reglugerðar þessarar um fjöldatakmörkun, nálægðartakmörkun og grímuskyldu taka ekki til barna sem fædd eru 2015 eða síðar. Grímuskylda skv. 2. mgr. 4. gr. á ekki við börn sem fædd eru 2005 og síðar.

Reglugerð þessi tekur ekki til skólastarfs sem fjallað er um í sérstakri reglugerð um takmörkun skólastarfs.

3. gr. Fjöldatakmörkun.

Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar reglugerðar. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en tíu einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum. Er þá meðal annars vísað til:

  1. Ráðstefna, málþinga, útifunda o.þ.h.
  2. Kennslu, fyrirlestra og prófahalds.
  3. Skemmtana, svo sem tónleika, menningarviðburða, leiksýninga, bíósýninga, íþróttaviðburða og einkasamkvæma.
  4. Kirkjuathafna hvers konar, svo sem vegna giftinga og ferminga, og annarra trúarsamkoma, sbr. þó 4. mgr.
  5. Annarra sambærilegra viðburða með fleiri en tíu einstaklingum.

Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en tíu einstaklingar inni í sama rými. Tryggja skal að ekki sé samgangur milli rýma.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er verslunum heimilt að taka við fimm viðskiptavinum á hverja 10 m², þó að hámarki 50 viðskiptavini í rými, en 100 viðskiptavini í lyfja- og matvöruverslunum. Þá er heimilt að hafa allt að 20 starfsmenn í sama rými og viðskiptavinir að því gefnu að uppfyllt séu skilyrði 1. mgr. 4. gr.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er allt að 30 einstaklingum heimilt að vera viðstaddir athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga og skulu allir viðstaddir skráðir, þ.e. nafn, kennitala og símanúmer. Um fjölda fólks við erfidrykkju, fermingarveislur og sambærilega viðburði fer eftir 1. mgr.

Fjöldatakmarkanir 1. og 2. mgr. gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug, farþegaferjur og störf viðbragðsaðila, svo sem lögreglu, slökkviliðs, hjálparliðs almannavarna og heilbrigðisstarfsfólks. Enn fremur gildir ákvæðið ekki um störf ríkisstjórnar, ríkisráðs, Alþingis og þegar dómstólar fara með dómsvald sitt.

Fjöldatakmörkun samkvæmt ákvæði þessu á ekki við um heimilisfólk á heimili sínu.

4. gr. Almenn nálægðartakmörkun og grímunotkun.

Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi, meðal annars þeirri sem talin er upp í 3. gr., skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.

Andlitsgrímur skal nota í almenningssamgöngum, í verslunum og annarri þjónustu. Einnig skal nota andlitsgrímur þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun sem kveðið er á um í 1. mgr., svo sem í heilbrigðisþjónustu, innanlandsflugi og -ferjum, almenningssamgöngum, leigubifreiðum og hópbifreiðum, auk þess í menningarstarfsemi, starfsemi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa, sólbaðsstofa og annarri sambærilegri starfsemi. Andlitsgríma skal hylja nef og munn. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu skulu uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðlasamtakanna (CEN). Sóttvarnalæknir getur sett nánari leiðbeiningar um kröfur til andlitsgríma samkvæmt ákvæði þessu. Í þjónustu sem krefst snertingar skal gætt að handþvotti og sótthreinsun handa, auk þess skal sótthreinsa snertifleti milli viðskiptavina.

Undanþegnir grímuskyldu skv. 2. mgr. eru þeir einstaklingar sem fengið hafa COVID-19 og lokið einangrun. Jafnframt eru þeir undanþegnir grímuskyldu skv. 2. mgr. sem hafa ekki skilning eða þroska til að nota andlitsgrímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsufars.

Á þeim stöðum þar sem er grímuskylda skulu einstaklingar skv. 3. mgr. sýna vottorð um undanþágu frá grímuskyldu, auk skilríkja sé þess krafist.

5. gr. Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu.

Skemmtistöðum og krám, sbr. 18. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 1277/2016, spilakössum og spilasölum skal lokað frá gildistöku reglugerðarinnar. Þá skulu aðrir veitingastaðir þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar ekki hafa opið lengur en til kl. 21.00 alla daga vikunnar og skulu þeir fylgja ákvæðum 3. og 4. gr. Vínveitingar skulu bornar fram til sitjandi gesta. Í því felst að ekki er heimilt að hleypa inn nýjum viðskiptavinum eftir kl. 21.00 og skulu þeir hafa yfirgefið staðinn eigi síðar en kl. 22.00. Þó er heimilt að selja mat út úr húsi til kl. 23.00. Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. er hámarksfjöldi viðskiptavina í rými 20 sem skulu skráðir í númeruð sæti undir nafni, kennitölu og símanúmeri. Skráin skal varðveitt í tvær vikur og eytt að þeim tíma liðnum.

Í þeim tilvikum þar sem fleiri tegundir veitingastaða eru skráðar í rekstrarleyfi er heimilt að starfa áfram í samræmi við aðrar tegundir en kveðið er á um í 1. mgr. með þeim takmörkunum sem kveðið er á um í reglugerð þessari.

Ekki er heimilt að veita tímabundið leyfi fyrir skemmtunum, svo sem tónleikum, dansleikjum, brennum eða öðrum viðburðum sem ætla má að dragi að sér hóp fólks eftir kl. 21.00.

Sund- og baðstöðum sem og heilsu- og líkamsræktarstöðvum skal lokað.

Íþróttir, þar með taldar æfingar og keppnir, barna og fullorðinna, hvort sem er innan- eða utandyra, sem krefjast meiri nálægðar en 2 metra milli einstaklinga eða þar sem hætta er á snertismiti vegna sameiginlegs búnaðar, eru óheimilar.

Sviðslistir, og sambærileg starfsemi, eru óheimilar.

6. gr. Hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir.

Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og aðrar sambærilegar stofnanir eru almennt undanþegnar ákvæðum reglugerðarinnar en skulu setja sér reglur um starfsemi sína, svo sem um heimsóknir utanaðkomandi að heimilunum og stofnununum, nálægðartakmarkanir, hámarksfjölda í rými og hlífðarbúnað. Heimilt er að líta til þess hvort starfsfólk og/eða heimilisfólk sé bólusett gegn COVID-19.

7. gr. Þrif og sótthreinsun almenningsrýma.

Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti. Auk þess skal minna almenning og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir, svo sem munnlega, með merkingum eða skiltum. Þá skal tryggja góða loftræstingu þar sem umgangur fólks er nokkur og lofta reglulega út.

Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, meðal annars við afgreiðslukassa og innkaupakerrur í verslunum.

8. gr. Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raforku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heilbrigðisstarfsemi, félagsþjónustu, löggæslu, sjúkraflutninga, hjálparliðs almannavarna eða slökkviliða.

Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Enn fremur getur ráðherra veitt undanþágu vegna starfa Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá banni við íþróttastarfi fyrir einstaka viðburði, svo sem vegna alþjóðlegra keppnisleikja, enda sé gætt fyllstu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti.

Við veitingu undanþága skal leitast við að grípa til annarra aðgerða þannig að gætt sé að smitvörnum eins og kostur er.

Ráðherra getur óskað eftir umsögn frá sóttvarnalækni um beiðnir um undanþágu.

9. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 190/2021, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, með síðari breytingu.

 Heilbrigðisráðuneytinu, 24. mars 2021. 

 F. h. r.

 Ásta Valdimarsdóttir. 

 Ásthildur Knútsdóttir. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.