Prentað þann 2. nóv. 2026
307/2026
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1571/2025 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1803 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002.
1. gr.
Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
Reglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) 2025/1047 frá 27. maí 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2023/1803 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS-staðal) 9 og alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS-staðal) 7. Reglugerðin er felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 252/2025 frá 24. október 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 17, dags. 19. mars 2026, bls. 761-770.
2. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga um ársreikninga, nr. 3/2006, skal gilda fyrir félög sem skylt er, eða nýta sér heimild til, að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 23. mars 2026.
F. h. r.
Ingvi Már Pálsson.
Harpa Theodórsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 27. mars 2026
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.