Prentað þann 4. jan. 2025
306/2023
Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 468/2013 um nýtingu afla og aukaafurða.
1. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, sem orðast svo:
Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. er heimilt að varpa hvelju af grásleppu fyrir borð á grásleppuvertíð 2023.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. gr. og 30. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 12. ágúst 2023.
Matvælaráðuneytinu, 22. mars 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.