Fara beint í efnið

Prentað þann 28. apríl 2024

Stofnreglugerð

300/2023

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um samstarf og upplýsingaskipti á sviði greiðsluþjónustu.

1. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sbr. 3. gr. laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið og bókun 1 við EES-samninginn:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2055 frá 23. júní 2017 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2015/2366 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir samstarf og upplýsingaskipti á milli lögbærra yfirvalda að því er varðar neytingu greiðslustofnana á staðfesturétti og frelsi til að veita þjónustu, sem er birt á bls. 44-68 í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20 frá 9. mars 2023. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2019 frá 14. júní 2019.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/410 frá 29. nóvember 2018 um tæknilega framkvæmdastaðla að því er varðar nákvæm efnisatriði og form upplýsinganna sem lögbær yfirvöld eiga að tilkynna, á sviði greiðsluþjónustu, til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366, sem birt er á bls. 69-132 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20 frá 9. mars 2023. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 213/2020 frá 11. desember 2020.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/411 frá 29. nóvember 2018 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um tæknilegar kröfur um þróun, rekstur og viðhald á rafrænu miðlægu skránni á sviði greiðsluþjónustu og um aðgengi að upplýsingunum sem er að finna í henni, sem birt er á bls. 133-141 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20 frá 9. mars 2023. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 213/2020 frá 11. desember 2020.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1722 frá 18. júní 2021 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina rammann um samstarf og upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda í heimaaðildarríkjunum og gistiaðildarríkjunum með tilliti til eftirlits með greiðslustofnunum og rafeyrisfyrirtækjum sem veita greiðsluþjónustu yfir landamæri, sem birt er á bls. 8-37 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20 frá 9. mars 2023. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 217/2022 frá 8. júlí 2022.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 114. gr. laga um greiðsluþjónustu, nr. 114/2021, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 10. mars 2023.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Benedikt Hallgrímsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.