Prentað þann 14. apríl 2025
299/2022
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1661/2021 um togveiðar á kolmunna árið 2022.
1. gr.
2. mgr. 2. gr reglugerðarinnar orðist svo:
Fyrir tímabilið 1. janúar 2022 til 31. desember 2022 er leyfilegur heildarafli sem hér segir (magn í tonnum):
Tegund | Leyfilegur heildarafli | Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) | Fiskistofa úthlutar aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar |
Kolmunni | 158.827 | 8.418 | 150.409 |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 3. og 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, 8. og 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, 2. og 9. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 8. mars 2022.
Svandís Svavarsdóttir.
Áslaug Eir Hólmgeirdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.