Prentað þann 8. apríl 2026
294/2026
Reglugerð um breytingu á reglugerð um söfnun meðmæla og skil framboða og framboðslista fyrir kosningar, nr. 254/2024.
1. gr.
Í stað orðanna "rafræn skilríki" í 3. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar, kemur: rafræna auðkenningu.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglugerðarinnar:
- 2. mgr. orðast svo: Rafrænt kerfi til söfnunar meðmæla lokar þegar framboðsfresti lýkur, en yfirkjörstjórn eða landskjörstjórn skal loka fyrir söfnun meðmæla hjá framboði þegar því er skilað.
- Í stað orðanna "þar sem kemur fram hvernig stofna skal til rafrænnar söfnunar meðmæla" í 3. mgr., kemur: um notkun rafræna meðmælendakerfisins.
- Við 1. málsl. 4. mgr. bætist: og jafnframt fært inn í það þau meðmæli sem skilað hefur verið á blöðum.
- Við 2. málsl. 4. mgr. bætist: og færa inn meðmæli af blöðum.
- Á eftir orðunum "meðmæli sín" í 6. mgr., kemur: og dregið þau til baka.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir orðunum "blaðsíðunúmeri og" í 3. mgr., kemur: er miðað við.
- 5. mgr. orðast svo: Landskjörstjórn og yfirkjörstjórn sveitarfélaga, geta óskað eftir því við framboð að meðmælendalistar sem skilað er á blöðum séu jafnframt slegnir inn í meðmælendakerfið.
4. gr.
Á eftir orðunum "skal landskjörstjórn" í 4. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar, kemur: eða yfirkjörstjórn sveitarfélags; og við málsgreinina bætist: eigi síðar en sex mánuðum eftir kjördag.
5. gr.
Við 2. málsl. 21. gr. reglugerðarinnar bætist: í forsetakjöri og kosningum til Alþingis en til yfirkjörstjórnar viðkomandi sveitarfélags í kosningum til sveitarstjórna.
6. gr.
2. málsl. d-liðar 2. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar fellur brott; og við stafliðinn bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sé lögheimili í fjölkjarna sveitarfélagi er heimilt að tilgreina heiti þess byggðakjarna sem það stendur í.
7. gr.
2. málsl. d-liðar 2. mgr. 27. gr. reglugerðarinnar fellur brott; og við stafliðinn bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sé lögheimili í fjölkjarna sveitarfélagi er heimilt að tilgreina heiti þess byggðakjarna sem það stendur í.
8. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 1. og 2. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 47. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og tekur þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 23. mars 2026.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Páll Winkel.
B deild - Útgáfudagur: 26. mars 2026
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.