Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 24. apríl 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 8. apríl 2010 – 17. jan. 2012 Sjá núgildandi

291/2010

Reglugerð um birtingu niðurstaðna vegna eftirlits með áburði.

1. gr. Markmið og gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um birtingu á niðurstöðum eftirlits með áburði. Markmið reglugerðarinnar að að stuðla að opinberri birtingu upplýsinga um gæði og öryggi áburðar.

2. gr. Skýrsla.

Matvælastofnun skal árlega taka saman skýrslu með niðurstöðum úr eftirliti með áburði sem er á markaði. Í skýrslunni skal koma fram listi yfir þær vörur sem eru skráðar og eru á markaði á viðkomandi ári. Skýrslan skal innihalda niðurstöður efna- og örverugreininga en auk þess skal birta athugasemdir sem gerðar eru við merkingar á áburði. Matvælastofnun er heimilt að flokka niðurstöður eftirlitsins eftir fyrirtækjum og eða vöruflokkum.

3. gr. Birting skýrslu.

Skýrslu Matvælastofnunar vegna eftirlits á árinu skal birta fyrir lok viðkomandi árs. Skýrsluna skal birta með rafrænum hætti á heimasíðu stofnunarinnar.

4. gr. Innflytjendur og framleiðendur.

Innflytjandi eða framleiðandi áburðar skal eiga kost á að koma á framfæri athugasemdum við þann hluta skýrslunnar sem fjallar um vörur viðkomandi og skal veittur 30 daga frestur til að skila inn athugasemdum. Sé ekki tekið tillit til athugasemda frá innflytjanda eða framleiðanda skal birta þær í viðauka við skýrslu Matvælastofnunar.

5. gr. Kærur og frestun birtingar.

Stjórnsýslukæra aðila máls til ráðherra frestar ekki birtingu skýrslu Matvælastofnunar.

6. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 6. gr. a laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 16. mars 2010.

Jón Bjarnason.

Baldur P. Erlingsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.