Prentað þann 4. jan. 2025
289/2021
Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 468/2013 um nýtingu afla og aukaafurða.
1. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, sem orðast svo:
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. gildir ekki fyrir grásleppuvertíð 2021.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. mars 2021.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.