Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 8. maí 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 4. apríl 2017 – 9. feb. 2018 Sjá núgildandi

285/2017

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/759 um skrá yfir þriðju lönd, hluta þriðju landa og yfirráðasvæði þaðan sem aðildarríkin skulu heimila aðflutning til Sambandsins á tilteknum afurðum úr dýraríkinu sem eru ætlaðar til manneldis og um að mæla fyrir um kröfur um vottorð.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 1. maí 2010, öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/759 frá 28. apríl 2016 um skrá yfir þriðju lönd, hluta þriðju landa og yfirráðasvæði þaðan sem aðildarríkin skulu heimila aðflutning til Sambandsins á tilteknum afurðum úr dýraríkinu sem eru ætlaðar til manneldis, um að mæla fyrir um kröfur um vottorð, um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2074/2005 og um niðurfellingu á ákvörðun 2003/812/EB.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1793 frá 10. október 2016 um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/759 að því er varðar aðflutning til Sambandsins á gelatíni og kollageni og meðhöndluðum hráefnum fyrir þessar vörur frá Taívan.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar, sem nefndar eru í 1. gr., eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995, um matvæli.

4. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum eða fangelsi. Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. mars 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.