Prentað þann 27. des. 2024
Breytingareglugerð
280/2024
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.
1. gr.
Við 1. mgr. 52. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/566 frá 11. mars 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 að því er varðar ítarlegar ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 289/2023 frá 27. október 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83 frá 16. nóvember 2023, bls. 504-509.
2. gr.
Við 2. mgr. 52. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:
- Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar C(2023)1569 frá 10. mars 2023 um breytingu á framkvæmdarákvörðun C(2015) 8005 að því er varðar tilteknar ítarlegar ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 289/2023 frá 27. október 2023.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 167. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 19. febrúar 2024.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.