Prentað þann 22. nóv. 2024
278/2024
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 926/2015 um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði.
1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætast nýir stafliðir, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1383 frá 8. júlí 2019 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækja sem annast stjórnun á áframhaldandi lofthæfi og tilslakanir fyrir loftför í almannaflugi að því er varðar viðhald og stjórnun á áframhaldandi lofthæfi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 571.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/270 frá 25. febrúar 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar umbreytingarráðstafanir fyrir fyrirtæki sem annast áframhaldandi lofthæfi fyrir almannaflug ásamt stjórnun á áframhaldandi lofthæfi og um leiðréttingu á þeirri reglugerð, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 796.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1159 frá 5. ágúst 2020 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1321/2014 og (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu nýrra viðbótarlofthæfikrafna, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 926.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/700 frá 26. mars 2021 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar viðhaldsgögn og ísetningu tiltekinna loftfarsíhluta meðan á viðhaldi stendur, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 1077.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1963 frá 8. nóvember 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar öryggisstjórnunarkerfi í viðhaldsfyrirtækjum og um leiðréttingu þeirrar reglugerðar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES‑nefndarinnar nr. 135/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 1094.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1360 frá 28. júlí 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar framkvæmd hóflegri krafna fyrir loftför sem notuð eru í sport- og tómstundaflugi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 136/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 25. maí 2023, bls. 450.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 72. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.
Með þessari reglugerð fellur samhliða úr gildi reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 926/2015 um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði nr. 583/2022.
Innviðaráðuneytinu, 19. febrúar 2024.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.