Prentað þann 26. des. 2024
255/1993
Reglugerð um vörugjöld af eldsneyti.
1. gr. Almennt vörugjald af bensíni.
Greiða skal 10,50 kr. vörugjald af hverjum lítra af bensíni.
2. gr.
Af vörugjaldi skv. 1. gr. skulu 36% greidd við tollafgreiðslu, 20% innan 60 daga og 44% innan 90 daga talið frá komudegi flutningsfars.
3. gr. Sérstakt vörugjald af bensíni.
Auk vörugjalds skv. 1. gr. skal greiða sérstakt vörugjald - bensíngjald - af bensíni. Af blýlausu bensíni, skal greiða gjald sem nemur 22,40 kr. af hverjum lítra. Af blýlausu bensíni skal greiða gjald sem nemur 25,51 kr. af hverjum lítra. Af öðru bensíni skal greiða gjald sem nemur 27,11 kr. af hverjum lítra.
4. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. skal heimilt að gera bensíngjald upp miðað við sölu birgða. Frestur til greiðslu gjaldsins til innheimtumanns ríkissjóðs skal þó aldrei vera lengri en svo að það sé greitt áður en einn mánuður er liðinn frá lokum sölumánaðar.
5. gr. Ýmis ákvæði
- Að fenginni umsókn umráðamanns flugvélar skal endurgreiða honum bensíngjald (C1) og vörugjald af bensíni (LB) ef hann sýnir fram á að bensínið hafi verið nýtt sem eldsneyti á flugvél. Í umsókninni skal tilgreina:
- Nafn, kennitölu og heimilisfang umsækjanda,
- tegund og einkennisstafi flugvélar,
- magn bensíns,
- meðalbensíneyðslu flugvélar á klukkustund samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda,
- samanlagðan flugtíma á því tímabili sem bensínið var nýtt.
Umsókninni skal beint til tollstjóra og henni skal fylgja:
- Frumrit reiknings vegna bensínkaupa,
- samantektarskjal, þar sem dagsetning, númer og fjárhæð hvers reiknings og fjöldi keyptra lítra er tilgreindur ásamt samtölum allra reikninga, ef umsókn varðar fleiri en einn reikning,
- staðfesting á umráðum yfir flugvél, t.d. útprentun úr loftfaraskrá, leigusamningur eða staðfesting á aðild að félagi um rekstur flugvélar (flugklúbbi),
- afrit af loftferðadagbók á því tímabili sem bensínið var nýtt.
Tollstjóri skal ljúka afgreiðslu umsóknarinnar innan 30 daga frá því að hún berst ásamt fullnægjandi fylgigögnum.
6. gr.
Að því leyti sem eigi er kveðið á um gjaldskyldu, álagningu, úrskurð um flokkun til gjaldskyldu, samræmingu gjalda, eftirlit, innheimtu, vörslusviptingu, veð. uppboð, sektir, viðurlög, refsingar og aðra framkvæmd varðandi gjöld skv. reglugerð þessari skulu gilda ákvæði tollalaga, nr. 55/1987, með síðari breytingum, laga nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari breytingum, og laga nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., eftir því sem við getur átt, svo og reglugerða og annarra fyrirmæla settra samkvæmt þeim.
7. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 28. gr. laga nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., gildir frá 1. janúar 1994 og tekur til innflutnings á bensíni sem tekið er til tollafgreiðslu frá og með þeim degi.
Ákvæði til bráðabirgða.
Hver sá, sem á eða hefur til umráða gjaldskyldar birgðir af bensíni hinn 1. júlí 1993 skal ótilkvaddur tilkynna það innheimtumanni fyrir 10. júlí 1993. Eigandi eða umráðamaður þess skal ótilkvaddur aðstoða við að kanna birgðir óski innheimtumaður slíkrar aðstoðar.
Innheimtumaður getur krafist upplýsinga frá innflytjendum bensíns og bensínsölum um sölu samkvæmt verslunarbókum til viðskiptamanna er fram fór fyrir 1. júlí 1993.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.