Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 28. mars 2026

Breytingareglugerð

231/2026

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð um stofnanaþjónustu fyrir aldraða, nr. 1580/2024.

1. gr.

Við 5. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Eigi heimilismaður á dvalarheimili fyrir aldraða maka sem er ekki heimilismaður á dvalarheimili skal fjárhæð dvalargjalds vera 70% af því sem hann hefði annars greitt skv. 1. mgr.

2. gr.

Í stað dagsetningarinnar "1. apríl 2026" í ákvæði til bráðabirgða kemur: 30. júní 2026.

3. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Heimilismenn sem hafa fram til 30. júní 2026 fengið leiðréttingu á dvalarframlagi skv. ákvæði til bráðabirgða í reglugerð þessari, sbr. einnig ákvæði til bráðabirgða í lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, geta áfram óskað eftir að Tryggingastofnun beri saman útreikning á dvalarframlagi fyrir og eftir gildistöku laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um málefni aldraðra, nr. 166/2006, og laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð, lögum um Ábyrgðasjóð launa, lögum um fæðingar- og foreldraorlof, lögum um málefni aldraðra og lögum um húsnæðismál, nr. 120/2009. Ef samanburðurinn sýnir aukna kostnaðarþátttöku heimilismanns frá því sem var fyrir gildistöku þeirra laga skal leiðrétta dvalarframlag í samræmi við það.

Hafi heimilismaður ekki fengið leiðréttingu á dvalarframlagi fyrir 1. júlí 2026 fer greiðsla dvalarkostnaðar hans eftir ákvæðum II.-IV. kafla reglugerðarinnar.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett með stoð í 29. gr., sbr. 24. og 12. mgr. 26. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, öðlast þegar gildi. Þó skal 1. gr. ekki öðlast gildi fyrr en 1. júlí 2026.

Heilbrigðisráðuneytinu, 16. febrúar 2026.

Alma D. Möller.

Sigurður Kári Árnason.

B deild - Útgáfudagur: 6. mars 2026

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.