Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 28. mars 2026

Breytingareglugerð

224/2026

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1250/2024 um útlit og viðvörunarmerkingar tóbaksvara, losun skaðlegra tóbaksefna, mæliaðferðir og skýrslugjöf.

1. gr.

Ákvæði til bráðabirgða í reglugerðinni orðast svo:

Tóbaksvörur sem merktar eru í samræmi við reglugerð um viðvörunarmerkingar á tóbaki og mælingar og hámark skaðlegra tóbaksefna, nr. 790/2011, má flytja til landsins næstu 18 mánuði frá gildistöku reglugerðar þessarar og hafa í sölu í allt að 24 mánuði frá gildistöku reglugerðar þessarar.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, tekur þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 2. mars 2026.

Alma D. Möller.

Guðríður Bolladóttir.

B deild - Útgáfudagur: 5. mars 2026

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.