Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 28. mars 2026

Breytingareglugerð

216/2026

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1175/2021 um framkvæmd ársreikningaskrár við gerð kröfu um slit félaga.

1. gr.

Heiti reglugerðarinnar breytist og verður svohljóðandi: Reglugerð um málsmeðferð vegna skipta á búi félaga samkvæmt lögum um ársreikninga.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "áður en" kemur: þegar.
  2. Í stað orðsins "félagi" kemur: búi félags.
  3. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Markmið.

3. gr.

Ákvæði 2. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

4. gr.

Á eftir orðinu "sem" í 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: skilgreind eru í 1. gr. laga nr. 3/2006 og.

5. gr.

Orðin "um ársreikninga" í 5. gr. reglugerðarinnar falla brott.

6. gr.

Fyrirsögn IV. kafla reglugerðarinnar verður: Málsmeðferð ársreikningaskrár vegna skipta á búi félags.

7. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "sendir" kemur: birtir.
  2. Á eftir orðinu "félags" kemur: , sbr. 8. gr.

8. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:

  1. 2. og 3. málsl. 1. mgr. verða svohljóðandi: Tilkynninguna skal birta í stafrænu pósthólfi félagsins, sbr. lög um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda, og telst það ávallt nægileg birting. Þegar tilkynningin hefur verið birt í stafrænu pósthólfi félagsins telst hún birt viðtakanda.
  2. 2. mgr. fellur brott.
  3. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Tilkynning um fyrirhugaða kröfu um skipti.

9. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. reglugerðarinnar:

  1. 1. málsl. verður svohljóðandi: Að loknum þeim fjögurra vikna fresti sem veittur er félagi skv. 7. gr., sendir ársreikningaskrá viðkomandi héraðsdómi kröfu um að bú félags verði tekið til skipta.
  2. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein er verði 2. mgr., svohljóðandi: Í kjölfarið skal ársreikningaskrá birta tilkynningu í stafrænu pósthólfi félagsins um að ákvörðun hafi verið tekin um að krefjast skipta, sbr. lög um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda, og telst það ávallt nægileg birting. Þegar ákvörðunin hefur verið birt í stafrænu pósthólfi félagsins telst hún birt viðtakanda.
  3. Í stað orðsins "stjórn" í 2. málsl. 4. mgr. kemur: stjórnarmaður.
  4. Í stað orðanna "fyrstu fyrirtöku" í 2. málsl. 4. mgr. kemur: þinghalds.

10. gr.

Fyrirsögn V. kafla reglugerðarinnar verður svohljóðandi: Málsmeðferð eftir móttöku héraðsdóms á kröfu um skipti.

11. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "hefur komið fram" kemur: hefur verið send til héraðsdóms
  2. Í stað orðanna "kröfu um skipti á félagi" í 1. málsl. kemur: kröfuna
  3. 2. málsl. fellur brott.
  4. Fyrirsögn greinarinnar fellur brott.

12. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 1. mgr. 121. gr. laga um ársreikninga, nr. 3/2006, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 27. febrúar 2026.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Sigurbjörg Guðmundsdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 4. mars 2026

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.