Prentað þann 16. jan. 2025
215/2006
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 515/1996, um skráningu virðisaukaskattsskyldra aðila, með síðari breytingum.
1. gr.
3. málsl. 3. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Þyki eðlilegt að starfsemin hafi ekki skilað tekjum innan þess tíma getur skattstjóri veitt aðila áframhaldandi skráningu til allt að tíu ára, mest tvö ár í senn.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað orðsins "sex" í 2. mgr. kemur: tólf.
- 3. mgr. orðast svo: Trygging skal á hverjum tíma nægja til greiðslu útskatts, sbr. 1. mgr. 9. gr. og til greiðslu á leiðréttum innskatti, sbr. 2. mgr. 9. gr.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytinu, 13. mars 2006.
Árni M. Mathiesen.
Baldur Guðlaugsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.