Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

205/2021

Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 674/2017 um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast fimm nýir töluliðir, 19., 20., 21., 22. og 23. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/207 frá 14. febrúar 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar innflutning á gæludýrafóðri frá Sádi-Arabíu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 177/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 455.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/735 frá 2. júní 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar notkun kjöt- og beinamjöls sem eldsneyti í brennsluverum. Reglugerðin var felld inn EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 458.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/757 frá 8. júní 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar rekjanleika tiltekinna aukaafurða úr dýrum og afleiddra afurða. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 462.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/762 frá 9. júní 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar örverufræðilega staðla fyrir hrátt gæludýrafóður, kröfur varðandi samþykkt fyrirtæki, tæknilegar vinnslubreytur sem gilda um staðgönguaðferðina Brookes-gösun og vatnsrof bræddrar fitu og útflutning á unnum húsdýraáburði og tilteknum tegundum blóðs, blóðafurða og millistigsafurða. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 465.
  5. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/797 frá 17. júní 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar kröfur vegna aukaafurða úr dýrum og afleiddra afurða sem eru upprunnar í Sambandinu og fara þangað aftur eftir að þriðja land hefur synjað um innflutning. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 470.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 13. og 29. gr. a laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. febrúar 2021.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.