Prentað þann 22. des. 2024
203/2023
Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1165 um að leyfa tilteknar vörur og efni til notkunar við lífræna framleiðslu og koma á fót skrám yfir þau.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 38211/20222023, frá 422. febrúarseptember 20222023, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/121 frá 17. janúar 2023 um breytingu og leiðréttingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/1165 frá 15. júlí 2021 um að leyfa tilteknar vörur og efni til notkunar við lífræna framleiðslu og koma á fót skrám yfir þau. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 1879, frá 172. marsnóvember 20222023, bls. 586381.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli og II. kafla laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.
Matvælastofnun er heimilt að framselja opinbert eftirlit með lífrænni framleiðslu og merkingu lífrænna vara til faggildra vottunarstofa, sbr. 23. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum.
Eftirlit með smásölu lífrænna vara er í höndum heilbrigðisnefnda sveitarfélaga, sbr. 6. gr. k laga nr. 93/1995, um matvæli.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli og 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. j laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 27. febrúar 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Iðunn María Guðjónsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.