Prentað þann 22. des. 2024
Breytingareglugerð
193/2008
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 331/2000, um vörugjald af ökutækjum, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir orðinu "torfærukeppni" kemur: og kappakstursbifreiðum til nota á lokuðum brautum til akstursíþrótta.
- Í stað orðsins "dómsmálaráðuneytisins" í 1. tl. 2. mgr. kemur: samgönguráðuneytisins.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 28. gr. laga nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytinu, 11. febrúar 2008.
F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir.
Guðmundur Jóhann Árnason.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.