Fara beint í efnið

Prentað þann 26. des. 2024

Breytingareglugerð

188/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 840/2015.

1. gr.

Á eftir 2. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 2. gr. a., svohljóðandi:

Þrátt fyrir 7. tl. 2. mgr. 4. gr. og 1. mgr. 11. gr. laga nr. 65/2015 skal leyfisveitandi ekki afturkalla þegar útgefið starfsleyfi þegar umsækjandi, forsvarsmaður umsækjanda, leyfishafi eða forsvarsmaður leyfishafa skulda samanlagt allt að 10.000.000 kr. í skatta og opinber gjöld, enda sé í gildi greiðsluáætlun milli framangreindra aðila og skattyfirvalda um niðurgreiðslu skuldar. Þá er leyfisveitanda í slíkum tilvikum jafnframt heimilt að gefa út starfsleyfi. Verði ekki staðið við greiðsluáætlun, að mati leyfisveitanda, ber leyfisveitanda að afturkalla leyfið án fyrirvara eða aðvörunar. Við mat á því hvort staðið hafi verið við greiðsluáætlun er leyfisveitanda heimilt að afla upplýsinga frá skattyfirvöldum.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í lögum um leigu skráningarskyldra ökutækja nr. 65/2015 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 1. janúar 2023.

Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, 11. febrúar 2022.

Lilja D. Alfreðsdóttir
menningar- og viðskiptaráðherra.

Sigrún Brynja Einarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.