Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 23. des. 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 6. mars 2020 – 20. feb. 2021 Sjá núgildandi

186/2020

Reglugerð um tímabundið bann við veiðum með fiskibotnvörpu á veiðisvæðum humars.

1. gr.

Allar veiðar með fiskibotnvörpu eru bannaðar, á eftirfarandi veiðisvæðum humars, frá og með 16. mars 2020 til og með 15. mars 2021:

A. Lónsdýpi, sem markast af eftirfarandi hnitum:

  1. 64°10,00´N - 014°42,00´V
  2. 63°56,00´N - 014°12,00´V
  3. 63°56,00´N - 014°05,00´V
  4. 64°10,00´N - 014°30,00´V

B. Hornafjarðardýpi, sem markast af eftirfarandi hnitum:

  1. 64°00,00´N - 015°18,00´V
  2. 63°43,00´N - 014°52,00´V
  3. 63°46,00´N - 014°47,00´V
  4. 64°00,00´N - 015°10,00´V

C. Breiðamerkurdýpi, sem markast af eftirfarandi hnitum:

  1. 63°52,50´N - 016°16,00´V
  2. 63°35,00´N - 015°46,00´V
  3. 63°37,00´N - 015°41,00´V
  4. 63°57,50´N - 016°02,00´V

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 268/2019, um tímabundið bann við veiðum með fiskibotnvörpu á veiðisvæðum humars.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. febrúar 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.