Prentað þann 21. nóv. 2024
186/2020
Reglugerð um tímabundið bann við veiðum með fiskibotnvörpu á veiðisvæðum humars.
1. gr.
Allar veiðar með fiskibotnvörpu eru bannaðar á eftirfarandi veiðisvæðum humars frá og með 16. mars 2022 til og með 15. mars 2024::
A. Lónsdýpi, sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 64°10,00´N - 014°42,00´V
- 63°56,00´N - 014°12,00´V
- 63°56,00´N - 014°05,00´V
- 64°10,00´N - 014°30,00´V
B. Hornafjarðardýpi, sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 64°00,00´N - 015°18,00´V
- 63°43,00´N - 014°52,00´V
- 63°46,00´N - 014°47,00´V
- 64°00,00´N - 015°10,00´V
C. Breiðamerkurdýpi, sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 63°52,50´N - 016°16,00´V
- 63°35,00´N - 015°46,00´V
- 63°37,00´N - 015°41,00´V
- 63°57,50´N - 016°02,00´V
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 268/2019, um tímabundið bann við veiðum með fiskibotnvörpu á veiðisvæðum humars.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.